28.3.2008 | 01:46
Helgarfrí jibbí
Skrítið samtal á Laugaveginum í kvöld. Stelpa: Vá bara með kraftpúst. Ég: nei það er bara gat á pústinu hjá mér. Stelpa: Gerðiru það sjálf? Ég nei pústkerfið mitt er að hrynja undan bílnum. Stelpa: Hvað er hann mörg hestöfl. Ég: 52 Svo kom grænt ljós á gatnamótum Laugavegar og Lækjargötu og leiðir okkar skildu.
Núna er ég komin í langþráð tveggja daga helgarfrí. Á morgun verður smá pizzuveisla fyrir örverpið, bara fyrir systkinin og foreldrana. Svo á laugardaginn verður farið í Bláa lónið. Ég, sú 18 ára Aðalheiður Björk sem fékk nudd í Bláa lóninu í afmælisgjöf og örverpið Hulda ætlum að vera þar í nokkra klukkutíma og slappa vel af. Ég ætla að maka vel á mig hvítu leðjunni til að minnka hrukkurnar, það virkaði vel síðast.

Athugasemdir
Ekki sá ég neinar hrukkur. Njóttu vel.
Hólmdís Hjartardóttir, 28.3.2008 kl. 02:25
Takk
hrukkurnar eru kannski ekki djúpar en ég fann og sá mun, kannski vegna þess að ég er með svo viðkvæma húð. Ég fæ frostrósir í frosti, risa þurrkubletti og þá sjást hrukkurnar frekar vel 
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.3.2008 kl. 02:35
Tiger, 28.3.2008 kl. 03:21
Njóttu þess að vera í helgafríi
Brynja skordal, 28.3.2008 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.