Jafnrétti í báðar áttir

Er það ekki bara í tísku að jafnrétti sé í báðar áttir, stórbrjósta karlmenn ætti náttúrulega að skikka til þess að vera í brjóstahöldurum, ekki er nú fallegt að horfa á stór mannabrjóst ( manboobs) Þá vil ég nú frekar sjá, venjuleg kvenbrjóst í sundlauginni minni hérna á Nesinu.  En offituvandamál karlmanna nútímans hefur skapað þessi vandræði að mínu mati.  Mér finnst sorglegt að horfa á smástráka í sundi sem eru svo feitir að þeir hafa stærri brjóst heldur en stelpur á sama aldri.  Svo eru það smástelpurnar sem eru margar líka allt of feitar.  Við foreldrar erum náttúrulega ábyrg fyrir holdafari barnanna okkar.
mbl.is Konur mega bera brjóstin í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

jubb satt er þetta..koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 26.4.2008 kl. 13:52

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Við vorum alltaf berbrjósta þegar ég var ung.....hvenær hætti það að vera í lagi??

Hólmdís Hjartardóttir, 26.4.2008 kl. 13:55

3 Smámynd: Tiger

  Ég er nú bara glaður með að brjóstgott fólk megi sýna sig og sjá aðra - eða þannig sko! *flaut*..

Þakka þér kærlega mín kæra Jóna fyrir að líta við hjá systurminni og óska henni gleðilegs dags í gær! Það gladdi hana mikið og ég var mjög glaður að sjá hve margir gátu gefið sér tíma til að gera það! Knús á þig ljúfan og eigðu yndislega helgi.

Tiger, 26.4.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband