Ég held að ég sé skyld Viggó viðutan

Frumburðurinn minn fór til Danmerkur á sunnudaginn var.  Hún sagðist ætla að vera í Danmörku í viku og bjóst ég ekki við henni fyrr en á morgun.  Í dag laugardag skrapp ég í Bónus til þess að kaupa í matinn, vegna þess að ég fékk óvænta matargesti í heimsókn.  Og viti menn þegar ég kom heim úr búðinni stóð frumburðurinn úti á tröppum með þeirri næstelstu, að fá sér frískt loft.  Ég missti andlitið og spurði frumburðinn, heyrðu ætlaðir þú ekki að koma heim á morgun?  W00t 

 Það er allavega gott að hún er komin heim, hún færði mér eitthvað rosalega flott og dýrt Cognac.  Martell Gordon Bleu old classic cognac, 70 cl flaska á 50% afslætti í fríhöfninni kostaði yfir 7.000 krónur.  Ég var nú alveg hneyksluð að hún eyddi svona miklum peningum í vín handa mér.  Ég er að vísu að safna víni, og hef gert það í mörg ár. Ég ætla að byrja að drekka svona eðalvín þegar ég byrja að drekka vín.  Nútildags drekk ég eingöngu bjór eða pilsner Shocking  Ein drykkfelld


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Getur nú verið flott að bjóða svona fínerí við tækifæri.

Hólmdís Hjartardóttir, 25.5.2008 kl. 11:45

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú getur geymt þetta þangað til Ísland vinnur júróvision

Hólmdís Hjartardóttir, 25.5.2008 kl. 11:47

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þá verður það væntanlega aldrei drukkið   Ég sé ekki fyrir mér að við vinnum Júróvísjon nokkurn tíma

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.5.2008 kl. 14:04

4 Smámynd: Linda litla

þú hefur verið hissa þegar að frumburðunrinn birtist..... þessi börn okkar koma okkur sífelt á óvart.

Kveðja inn í nóttina, hafðu það gott.

Linda litla, 25.5.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband