Áráttuhegðun

Ég er með allskonar áráttuhegðun,  ef ég sé skakka mynd á vegg, verð ég að laga hana.  Ef það er ósamræmi í uppröðun á hlutum, verð ég að laga það.  Ef fólk talar vitlaust, þá leiðrétti ég það eins og börnin mín.  Shocking   En af hverju get ég ekki haft áráttu fyrir því að allt sé í röð og reglu heima hjá mér?  Mér er alveg sama um allt draslið, ef það er eitthvað á gólfinu klofa ég yfir það, ef eldhúsborðið er fullt af drasli, borða ég í stofunni.  Þetta getur ekki talist eðlilegt, en svona er ég bara W00t   Ein meingölluð

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

það er eitthvað ósamræmi í þessu.....þú vilt hafa röð og reglu...þú réttir myndirnar og raðar hlutum....kæra vog(geri þetta  nefnilega líka)...en kannski er orkan búin þegar þú klofar yfir draslið ??? Dætur mínar ganga illa um og stundum orka ég ekki meiri tiltekt.  En mér er ekki sama.....

Hólmdís Hjartardóttir, 27.5.2008 kl. 02:15

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þetta er ekki alveg eðlilegt, en ég á nú 6 börn og kannski er óreiðan partur af reglunni   Ég er orðin vön draslinu og finnst það ekki óþolandi lengur.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.5.2008 kl. 02:24

3 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Ég skil alveg hvað þú meinar, ég lagaðist þegar ég flutti í stærra húsnæði

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 27.5.2008 kl. 08:33

4 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Ég er svona með bækur sem mér finnst ekki nógu vel raðaðar saman í hillu og dauðlangar þá að breyta og færa. Reyni nú samt að hemja mig þegar ég er inn á heimilum hjá fólki og sleppi því að breyta í hillunum

Ef mig vantar einhvern tímann aukavinnu þá auglýsi ég kannski að ég taki að mér að endurskipuleggja bókaskápa hjá fólki hehe. 

Björg K. Sigurðardóttir, 27.5.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband