Garðsláttur og fíflahreinsun

Ég og dóttir mín hún Jóna litla, vorum duglegar í gær.  Sláttuvélin mín var loksins sett í gang eftir langa hvíld.  Grasið í garðinum mínum var orðið frekar hátt, og átti sláttuvélin í mestu erfiðleikum, hún drap oft á sér vegna mikils grass.  Svo þegar slætti var næstum lokið, var sláttuvélin færð á hinn grasblettinn minn.  Þá datt undan henni hjól, Jóna litla skrúfaði það aftur á og hélt áfram slættinum.  Ég rakaði megnið af garðinum og upprætti ótrúlega marga fífla, núna er ég með smá harðsperrur eftir garðvinnuna í gær, og er lituð á fingrunum eftir fíflana.  Ég skrúbbaði og skrúbbaði hendurnar með góðum bursta og sápu áður en ég fór í vinnuna í kvöld, samt losnaði ég ekki við litinn sem fíflarnir skildu eftir sig.  W00t   Ein þreytt, sem er að fara að sofa.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tína

Hvað segirðu dúllan mín............................ hvenær á að taka mann í slökunarnámskeið?

Vonandi ertu vel úthvíld og tilbúin í skemmtilegan þjóðhátíðardag. Kramkveðjur að austan.

Tína, 17.6.2008 kl. 09:16

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt  og gleðilegan hátíðardag

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.6.2008 kl. 15:37

3 Smámynd: Tiger

 Hahaha .. Jóna mín, sko - þegar ég las fyrirsögnina "Garðsláttur og fíflahreinsun" - sá ég þig strax fyrir mér slá blettinn þinn - ennnn - svo í öllum hamaganginum og æsingnum myndir þú ekki geta hætt heldur færir á Alþingi og þar færir þú í "fíflahreinsun" ... omæómæ.

Knús á þig ljúfan og hafðu ljúfa nótt.

Tiger, 18.6.2008 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband