9.7.2008 | 01:45
Á morgun á að fara austur fyrir fjall.
Ég og krakkarnir mínir ætlum að leggja land undir fót á morgun. Við ætlum að fara til Hveragerðis og skoða nýju hverina, svo ætlum við að heimsækja pabba minn í sumarbústaðinn. Bústaðurinn er í Grímsnesinu og ætlum við að grilla þar og fara í heita pottinn og njóta sólarinnar sem á að skína á morgun samkvæmt veðurspánni.
Svo verð ég að fara í bæinn frekar snemma þar sem ég á að vinna annað kvöld.
Ein sem ætlar að slappa af í heita pottinum lengi. Og fá smá lit, kannski ef sólin skín.
Athugasemdir
þú ert nú alltaf brún mamma mín ... kveðja úr sveitinni knús og klemm :**
Jóna Salvör Kristinsdóttir, 9.7.2008 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.