11.7.2008 | 03:15
Það er ekki tekið út með sældinni að vera bloggari
Ég er búin að vera við tölvuna mína í tæpa þrjá klukkutíma, þegar ég kom heim úr vinnunni skráði ég mig inn á bloggið. Síðan þá hef ég dottið út af blogginu allavega 6-7 sinnum. Það kemur alltaf upp, aftur og aftur að ég sé ekki skráð inn. Mér finnst þetta vera óvenju slæmt í kvöld/nótt. Núna loksins er ég komin í helgarfrí eftir erfiða vinnuviku, það er búið að vera óvenju mikið að gera á barnum. Það er kannski ekki skrítið, bærinn er fullur af túristum.
Næstu tvo daga ætla ég að slappa af og gera sem minnst hérna heima.
Ein brennd og yfirmáta þreytt
Athugasemdir
Njóttu.......held ég eigi frí á laugardag og sunnudag
Hólmdís Hjartardóttir, 11.7.2008 kl. 11:36
Flott og njóttu þín um helgina og hafðu það ljúft Elskuleg
Brynja skordal, 11.7.2008 kl. 13:50
knús knús og bestu óskir um góða helgi
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.7.2008 kl. 14:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.