16.7.2008 | 01:31
Namm nýjar íslenskar
Nýjar íslenskar kartöflur eru sælgæti. En það er varla á færi einstæðra mæðra, öryrkja og ellifífeyrisþega að njóta þeirra. Ég tími ekki að eyða svona miklum peningum í kartöflur. Ég kaupi þessar nýju þegar verðið verður sanngjarnt. Ein sparsöm
Íslenskar kartöflur í verslanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Namm....keypti nyjar útlenskar og þær voru góðar
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 01:49
Ég ræktaði sjálf kartöflur í garðinum mínum í mörg ár og byrjaði ég yfirleitt að stela undan þeim í byrjun ágúst. Ég ræktaði Helgu sem er frekar seinsprottin og mjög góð mjölvamikil og bragðgóð. Núna er kartöflugarðurinn minn í órækt.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.7.2008 kl. 01:54
Ég hef sjálf ræktað kartöflur en það var " kláði" í garðium og ég hætti. Alin upp við kartölurækt sem dugði allt árið dásemd.
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 02:04
Humm, ég keypti nýjar íslenskar kartöflur í Bónus á 89 kr/kg í dag. Voru algjört sælgæti.
Björg K. Sigurðardóttir, 16.7.2008 kl. 21:23
Ég keypti líka kartöflur í Bónus í dag, mínar kostuðu 298 krónur kílóið. Í hvaða verslur verslar þú Björg?
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.7.2008 kl. 00:57
Ég keypti þær í Bónus í Holtagörðum um hádegið í gær.
Björg K. Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 17:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.