15.8.2008 | 01:04
Sjaldan lýgur almannarómur
Ég hef heyrt skoðanir margra í vinnunni minni í kvöld, á þessu fjórða upphlaupi í borgarstjórn í kvöld. Fólk er reitt og talar um kostnaðinn sem borgarbúar þurfa að borga fyrir þessa valdabaráttu. Svo ætla allir að muna þetta þegar næstu kosningar verða. Núna eru fjórir borgarstjórar á launum og ábyggilega ýmsir aðrir sem ekki er talað mikið um. En flestir eru sammála um það að hann Ólafur F hafi staðið sig illa og eru fegnir að vera lausir við hann.
Hanna Birna borgarstjóri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Voru allir í því ástandi að muna þetta til næstu kosninga?
Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 01:27
Já !! Það var ekkert fyllerí á barnum í kvöld, það var talað um útstrikanir og það var bara almenn gremja með ástandið.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.8.2008 kl. 01:29
Það verður mikið um útstrikanir í næstu kosningum
Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 01:44
Útstrikanir höfðu nú ekki mikið að segja í síðustu kosningum, frekar en endranær.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 02:57
Mér finnst ekki einn einast kjaftur í Ráðhúsinu í dag, vera hæfur til að taka við borgarstjórastólnum. Enginn.
Það er ekki ólöglegt að efna til nýrra kosninga og mér finnst að það eigi að gera, við eigum rétt á því að fá að kjósa aftur og að ekki sé verið að troða mönnum í háttsettar stöður sem eru með 1-2% fylgi borgarbúa á bak við sig. Hvernig í ósköpunum má þetta vera og af hverju gerir yfirstjórn Sjálfstæðisflokksins ekkert til að stoppa þessa hörmung???
Ég er alveg gjörsamlega búin að missa allt álit á þessu fólki og það þarf mikið til að ég svo mikið sem íhugi, að kjósa íhaldið aftur í borgina - það er búið að fá sitt tækifæri, en þeir voru greinilega orðnir svo valdaþyrstir að þeir klúðruðu því, svona líka rækilega!!
Lilja G. Bolladóttir, 15.8.2008 kl. 03:30
Dagur er gegnheill sómamaður.
Helgi Jóhann Hauksson, 15.8.2008 kl. 03:56
No comment, bý fyrir norðan
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 15.8.2008 kl. 09:45
Innlitskvitt og ósk um góða helgi
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.8.2008 kl. 18:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.