19.8.2008 | 03:15
Til hamingju með afmælið litla mín
Jóna Salvör dóttir mín á afmæli í dag, hún er orðin 21 árs gömul. Hún á lítinn son sem heitir Daníel Esekíel og búa þau mæðgin í Fljótunum. Ég sakna þeirra mikið, hún bjó hjá mér á meðan Daníel var á fyrsta árinu. Núna um þessar mundir er 1 ár síðan þau fluttu í Fljótin. þau hafa komið þrisvar í bæinn á þessu ári. Sem betur fer hafa þau stoppað í 1-4 vikur hjá mér í hvert skipti.
Ég tala við þau í síma næstum daglega, þótt ég þoli ekki að tala í síma.
Ein sem saknar Jónu og Daníels
Athugasemdir
http://janey.blog.is/blog/janey/ Þetta er bloggið hennar
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.8.2008 kl. 03:17
Til hamingju með Dóttir þína hafðu ljúfan dag Elskuleg
Brynja skordal, 19.8.2008 kl. 10:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.