11.9.2008 | 02:15
Múgæsingur
Í skóla dóttur minnar var mikil hræðsla við þessa heimsendaspá, litla dóttir mín bloggaði í gær, hennar blogg var svona " heimsendi, ég er bara 11 ára og vill ekki deyja ég er í sjokki" ég held að mörg börnin hafi verið ofsahrædd. Þessi litlu börn fylgjast líka með fréttunum og skilja ekki allt sem þar er sagt. Ein áhyggjufull
Öreindum skotið af stað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hef heyrt að þetta sé algengt hjá krökkunum
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 11.9.2008 kl. 06:47
Hann Leifur minn var líka mikið að velta þessu fyrir sér. En mér finnst að úr því fréttastofurnar voru að tala um þessar gagnrýnisraddir og möguleika á heimsendi, þá hefðu þeir átt að sjá til þess að umræðan um hið gagnstæða væri meira áberandi einmitt upp á að hræða ekki börnin okkar.
Var ekki annars fjör í vinnunni hjá þér í nótt fallegust?
Tína, 11.9.2008 kl. 06:50
ÆÆ en hvað ég skil krakkana
Hefði verið skíthræddur sjálfur.
Einar Örn Einarsson, 11.9.2008 kl. 07:16
Mínar voru mikið að spá í þetta og voru þó nokkuð hræddaren Pabbi var ekki lengi að útskíra fyrir þeim hvað væri í gangi og hvað væri mikið til af öfgafólki
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.9.2008 kl. 07:31
bíddu, varst það ekki þú sem ætlaðir að vera með hjálm á hausnum í gær ?
Birgir Hrafn Sigurðsson, 11.9.2008 kl. 09:30
Eðlilega bregðast börn svona við, þú heyra þetta í fréttum útundna sér og halda að heimurinn sé að farast. Nema hvað þegar búið er verið að tala um heimsendi í einhverja daga.
Linda litla, 11.9.2008 kl. 12:12
Ég var einmitt að lesa um eina 16 ára stelpu á Indlandi sem framdi sjálfsmorð út af þessu.
Gott að fjölmiðlar og aðrir þekkingarlausir plebbar fjalli um hraðalinn á ábyrgðarfullan hátt.
Sveitavargur, 11.9.2008 kl. 12:58
Já það er von að börn hræðist..svo bloggar maður um þetta í gamansömum tón án þess að spá ´nokkuð í málið
Ragnheiður , 11.9.2008 kl. 16:14
já það voru margar spurningar sem komu um þetta mál en allt að róast
Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.