14.9.2008 | 01:46
Þeim er vorkunn
Lögreglumenn á Íslandi eru í stórhættu á hverjum degi. Það er ekki í lagi að þeir hafi ekki einhver varnarvopn eins og rafbyssur til þess að ráða við snarvitlausa drukkna eða dópaða glæpamenn. Ég vorkenni lögreglunni, ég hef séð ýmislegt til þeirra í vinnunni sinni. Ég þarf stundum að hringja á lögregluna í vinnunni minni. Sem betur fer er yfirleitt brugðist skjótt við. Oft hef ég þurft að tjónka við viðskiptavini sem eru að gera lögreglunni sem ég hef hringt í lífið leitt. Lögreglan verður að treysta því að ef ráðist er á þá eða þeim hótað, að ofbeldismennirnir fái eitthvað annað en sektir eða skilorðsbundna dóma. Það þarf að refsa þeim sem virða ekki lögregluna, almennilega og setja fordæmi. Dæma menn í fangelsi og háar sektir. Ein sem treystir á lögregluna
Ég skal drepa konuna þína! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvar voru við ef þeir voru ekki hér. Mér finnst lögreglustarfið lítið virt. Refsingin á að verða eins hörð og ef þetta væri forsetin sjálfur sem var ógnaður.
Einn sem virðir vinnuna hjá lögreglunni
Margith Eysturtún, 14.9.2008 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.