24.9.2008 | 01:49
Fórnarkostnaður
Er þetta fórnarkostnaður vegna framboðs til öryggisráðs sameinuðuþjóðanna? Það virðast vera til endalausir peningar í ríkiskassanum fyrir svona gæluverkefni. Á meðan fjölskyldufólk berst í bökkum, við það að eiga í sig og á. Stórtæk eignaupptaka er raunveruleiki okkar sem borgum þessum gallhörðu, stjórnarherrum sem geta dælt milljónum og milljörðum til þess sem hugur þeirra stendur til. Svo þegar lauþeginn kvartar yfir dýrtíðinni, er honum sagt að herða sultarólina. Þetta þjóðfélag er á barmi glötunar. Ég held að ég sé orðin kommúnisti. Svo er eignaupptakan vegna verðtryggingarinnar alveg ótrúlega mikil. Maður á bara ekki réttu orðin yfir þetta svínarí.
Ísland stofnar sjóð fyrir eyríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við verðum að stofna "b loggaraflokkinn" sem hugsar um hagsmuni almennings
Hólmdís Hjartardóttir, 24.9.2008 kl. 02:32
Tek undir með Hólmdísi. Það yrði örugglega hörkufjör á landsfundum og miiiiikið talað.
Tína, 24.9.2008 kl. 07:45
Almáttugur hvað forgangsröðin í samfélaginu er vitlaus !
Ragnheiður , 24.9.2008 kl. 11:08
Já, hugsa sér annan eins skandal, á meðan ekki er hægt að tryggja okkur gott líf.
Lilja G. Bolladóttir, 24.9.2008 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.