15.10.2008 | 02:16
Glæpsamlegt athæfi
Það að stinga svona mikilvægri skýrslu undir stól er glæpur. Að halda áfram á sömu leið er ennþá meiri glæpur, hvað ef þessi kreppa hefði frestast um nokkra mánuði? Nógu illa lentum við í þessari lausafjárkreppu, og við lánum ekki kreppu. Er málið núna það að bjarga því sem bjargað verður? Eða erum við það illa stödd að bankarnir og ríkisstjórnin sleppi ekki, vegna viðvarandi samráðs og spillingar? Verða sömu menn áfram með ákvörðunarrétt? Á Davíð og ríkisstjórnin að halda velli? Nei segi ég.
Bankaskýrsla undir stól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það styttist í að fólkið í landinu tekur stjórnina í sínar hendur
Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 02:39
Já, ég segi það sama og þú Jóna mín - burt með feita karlinn úr brúnni - hann er búinn að koma okkur langt niður fyrir neðsta þrep ... burt með Landspabba! Hann er það allra versta sem komið hefur fyrir íslenska þjóð!
Tiger, 15.10.2008 kl. 02:50
Kærleikskveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.10.2008 kl. 07:41
Ef einhverntíma er tímabært að sletta skyri á alþingi þá er það núna
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 15.10.2008 kl. 22:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.