18.10.2008 | 02:27
Kreppublogg
Í fyrradag skrapp ég í fiskbúð til þess að kaupa mér fisk, ég hafði það í huga að kaupa eitthvað ódýrt í matinn fyrir mig og mín börn. Fiskbúðin heitir Fiskisaga og datt mér í hug að kaupa gellur, þær voru alltaf ódýrar í gamla daga. Mér blöskraði þegar ég sá verðið, heilar 1460 krónur fyrir kílóið af nætursöltuðum gellum Ég lét mig samt hafa það og keypti 0.662 grömm af gellum og borgaði ég fyrir það 967 krónur. Þótti mér það algjört okur. Svo skrapp ég í Bónus í gær og keypti ég Lambahrygg á aðeins 1400 krónur kílóið. Þannig var það ekki í gamla daga að kílóverð á gellum væri meira en kílóverð á lambahrygg Núna verður étinn hryggur upp á hvern dag. Ein hneyksluð.
Athugasemdir
OKUR
Hólmdís Hjartardóttir, 18.10.2008 kl. 02:29
Mér finnst harðfiskur æðislegur en kaupi hann yfirleitt ekki vegna verðsins.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.10.2008 kl. 02:46
Harðfiskur er ódýrastur á söluborðum í Mjódd.
Jens Guð, 18.10.2008 kl. 03:32
Jæks gellur Að vísu skal ég viðurkenna að ég hef bara borðað þetta hjá mömmu og þessi elska er bara sá alversti kokkur sem ég þekki. En nógu slæmt var þetta hjá henni til að mig langar ALDREI aftur að borða þetta. Ekki slæmt að fá sér bara hrygg í miðri viku.
Knús yndislegust
Tína, 18.10.2008 kl. 09:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.