19.10.2008 | 01:55
Ég mætti og sést ég á myndinni sem fylgir þessari frétt
Ég og frumburðurinn mættum á Austurvöll klukkan 15.00 í gær. Ræðurnar voru góðar, en tónlistaratriðið með skeggjaða manninum sem kom á milli ræðuhaldanna var með eindæmum leiðinlegt. Á myndinni sem fylgir fréttinni var ég lengst til hægri á miðri myndinni kerlingin með stutta hárið. Það var ætlun mín að fara líka í Laugardalinn og sjá Alsherjargoðann og Erp, en vegna gestagangs átti ég ekki heimangengt á þann atburð. Dóttir mín og börnin hennar 3 komu í heimsókn og minn fyrrverandi eiginmaður líka, þau þurftu samt að bíða hérna heima hjá mér á meðan ég skrapp á Austurvöll. Síðan var öllum boðið í mat, hér var Lambahryggur, með kartöflum, grænmeti og rjómasveppasósu í matinn. Ein mótmælaglöð
Mótmæla Davíð Oddssyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
sko þig......rosalega dekrar þú við þinn fyrrverandi
Hólmdís Hjartardóttir, 19.10.2008 kl. 02:04
Hehe hann þurfti samt að kaupa meira kjöt, þar sem hann og dóttir okkar og barnabörnin komu óvænt.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.10.2008 kl. 02:07
Svo var ég að hugsa ætli Davíð hafi hjálpað lögreglunni að telja fólkið á Austurvelli í gær? Við vorum miklu fleiri, en tæp 500
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.10.2008 kl. 02:18
Ég sá þig ekki í Laugardalnum
Sigurður Þórðarson, 19.10.2008 kl. 02:29
Það er ekki skrýtið, þar sem ég þurfti að hugsa um gestina mína, sem komu óvænt í mat og alles Samt fór ég á fundinn á Austurvelli Þrátt fyrir gestaganginn
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.10.2008 kl. 02:31
Flott.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.10.2008 kl. 17:18
Þið eruð líkar systurnar.
Guðjón H Finnbogason, 19.10.2008 kl. 21:28
Nohhhhh ekkert smá ljúfengur matseðill!!!
Hörkukvennaknús á þig
Tína, 20.10.2008 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.