Ég vona bara að hann og Samfylkingin standi við stóru orðin

Ekki selja eigur okkar á brunaútsölu.  Liggur svona mikið á, má ekki bíða og sjá til í nokkra daga á meðan málin skýrast?  Ég vona bara að ef Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn lánar okkur, verði sett að skilyrði að fagmenn verði ráðnir að Seðlabankanum.  Það má ekki klúðra lausninni með fljótfærni.  Svo er hérna smá frétt frá Reuters þar sem ég og frumburðurinn erum komnar í heimsfréttirnar bara fyrir það að mæta á mótmælafund.   W00t   http://uk.reuters.com//news/video?videoId=92427&src=vidAd1  Þegar rúm mínúta er liðin af þessari frétt birtumst við mæðgur á skjánum. 
mbl.is Össur: Ísland verður ekki selt á brunaútsölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sá þetta  þínar 15 mín af heimsfrægð

Hólmdís Hjartardóttir, 20.10.2008 kl. 01:53

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Frekar 3 sekúndur af frægð   1.04 -1.07

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.10.2008 kl. 02:02

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús á þig elsku Jóna Kolbrún mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.10.2008 kl. 14:11

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég tek undir það að ég vona að eitt af skilyrðunum sé að skipt verði um stjórnendur Seðlabankans. Að vísu held ég að tveir þeirra séu bankamenn, en þeir hafa náttúrlega ekkert haft í yfirganginn í Davíð. Sem maður hefur heyrt sögur af alveg frá því hann var lögfræðinemi við H.Í.

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.10.2008 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband