24.10.2008 | 01:38
Hann blæs greinilega hraustlega í Hafnarfirði
Hérna á Nesinu er veðrið skaplegt, það hvín að vísu smá í vindinum en úti er alveg ágætt veður. Hér varð stórtjón í kvöld á meðan ég var í vinnunni. Örverpið var með vinkonu sína í heimsókn og voru þær að leika sér inni í svefnherbergi, svo heyrði ég að þær voru að leika sér inni á baðherbergi. Áður en ég fór í vinnuna undraðist ég hvaða svarta rönd væri á baðkarinu og örverpið sagði að þær hefðu verið að baða dúkkurnar. Ég var nú smá hissa á því að svona mikill skítur hefði verið á dúkkunum. Svo var hringt í mig í vinnunni í kvöld, frumburðurinn var í símanum og sagði að allt málingardót þeirrar 18 ára væri horfið, og eyðilagt, það var tjón uppá u.þ.b 20 þúsund krónur. Örverpið fékk snyrtivörur systur sinnar lánaðar til þess að mála allar dúkkurnar. Frumburðurinn spurði mig hvaða refsing væri við hæfi, ég sagði alveg svellköld "þið megið ráða refsingunni" Á morgun verður öllum dúkkunum pakkað niður og teknar úr umferð, og nokkrum hent. Ein sem þarf að borga tjónið.
Reyna að afstýra stórtjóni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
æææææ
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 01:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.