8.11.2008 | 02:01
Ráðvendni. Burt með spillingarliðið.
Heiðarleiki, góðvild, sannsögli, umhyggjusemi, fyrirhyggjusemi. Allt eru þetta orð sem fólk í stjórnunarstöðum á Íslandi hefur ekki í hávegum höfð. Svik, lygar, mannvonska, og óráðssía virðast vera gildin sem stjórnmálamennirnir, bankastjórnendurnir og verkalýðsleiðtogarnir tilbiðja þessa dagana. Enginn er ábyrgur fyrir ástandinu hérna á Íslandi, þetta er allt útlendingunum að kenna, ekki okkur grenja Davíð, Geir og margir viðhlæjendur þeirra. Er ekki kominn tími á okkur sem borgum fyrir glöp stjórnendanna, að mæta á vikulega mótmælafundi sem haldnir eru á Austurvelli klukkan 15.00 á hverjum laugardegi? Ertu maður eða mús? Burt með spillingarliðið.
Athugasemdir
Góðan daginn frú Jóna, þú ert hress og baráttuglöð að vanda. Einar Már var helv...... góður í Mogganum í morgun, frjálshyggjan og Samfó. fengu til tevatnsins. Einar er andans maður og blés mér í brjóst vegnesti í bæjarferð kl. 15 í dag
Sigurður Þórðarson, 8.11.2008 kl. 08:46
Hlakka klikkað mikið til að sjá þig í dag og fá loksins tækifæri á að knúsa þig.
Tína, 8.11.2008 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.