Bloggvinahittingur, og mótmælafundur, Burt með spillingaröflin!!!

Ég skrapp austur fyrir fjall í dag til þess að hitta hana Tínu, þrír aðrir bloggarar voru mættir í sömu erindagjörðum, Landi, Sollan og Hrönn.  Við skruppum í skoðurnarferð í Ölvisholt, til þess að skoða bruggverksmiðjuna ég tók nokkrar myndir þar.   http://www.ii2.org/user.php?nick=huxa&s=images  Ekki gat ég vistað myndirnar hérna á moggablogginu W00t   Það er ekki í fyrsta skipti sem ómögulegt er að vista myndir hér.  Við skemmtum okkur vel, við byrjuðum á því að hittast í herrafataversluninni Blaze  sem Tína og eiginmaðurinn (ég man ekki nafnið á honum í augnablikinu)  hennar eiga, þar voru mjög smart föt.  Svo fórum við í bruggverksmiðjuna og síðast var haldið á Kaffi Krús sem er í næsta húsi við verslunina Blaze.  Við fengum okkur öll að borða og drekka þar.  Áður en ég fór austur skrapp ég á mótmælafundinn á Austurvelli.  Mér fannst flott þegar mótorhjólafólkið var að reykspóla fyrir framan Alþingishúsið, en lyktin var ekki eins flott.  Svo fannst mér flott þegar Bónusfánanum var flaggað á Alþingishúsinu.  Mér fannst báðar aðgerðirnar mjög táknrænar.  Svo er tölvan mín loksins komin í lag, minn fyrrverandi eiginmaður var í heimsókn þegar ég kom heim í kvöld og hjálpaði hann mér með tölvuna.  Núna er hún eins og ný!!  Ein sem mótmælir, Burt með spillingaröflin 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

PS: ég gleymdi þessu við vorum leyst út með gjöfum í bruggverksmiðjunni, við fengum 6 bjóra með okkur hvert, tvo Skjálfta, tvo Móra og tvo tilraunabjóra sem hafa ekki fengið nafn ennþá er eru bragðbættir með Hvannarót og Mjaðurt.  Ég gaf mínum fyrrverandi eiginmanni einn bjór af hverri sort fyrir hjálpina með tölvuna. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.11.2008 kl. 01:36

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ég hefði verið til að vera bæði á fundnum og fyrir austan!

Hólmdís Hjartardóttir, 9.11.2008 kl. 01:49

3 Smámynd: Landi

Þetta var bara gaman,takk fyrir kvöldið

Landi, 9.11.2008 kl. 11:58

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjjj takk fyrir í gær.Flott að þú minntist á bjórtegundirna......ég veit ekkert hvað er hvað .....en þú...stóru fremstu eru? og hnar ???

Solla Guðjóns, 10.11.2008 kl. 01:02

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Móri, kaldi og sá ómerkti líklega Þorrabjórinn þeirra

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.11.2008 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband