Það var bara plat

Til þess að fá fólk niður á Austurvöll, það var enginn mótmælafundur.  Bara fullt af villtu fólki sem slysaðist til þess að koma og horfa á eggjakast.  Fréttaflutningur hérna á Íslandi er orðinn stórundarlegur.  Ég var á þessum fræga mótmælafundi, en fór frekar snemma og missti ég af eggjakastinu.  Ræðuhöldin og fjöldinn sem var mættur til þess að mótmæla spillingunni, er náttúrulega aukaatriði, eggjum var kastað og fáni dreginn að húni.  Vá svo var reykspólað.  Ég mæti samt næsta laugardag á mótmælafundinn sem haldinn verður þá.  Ein mótmælaglöð, sem vill sjá aðgerðir ekki leynd og aðgerðarleysi. 
mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.11.2008 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband