Brjálað að gera fyrir jólin.

Ég var frekar dugleg í gær laugardag.  Það var gestagangur hjá mér, minn fyrrverandi kom og tvær dætur okkar, svo var náttúrulega sú sem býr á Hofsósi ásamt syni sínum hjá mér, þau tvö hafa verið hjá mér síðan í byrjun desember.  Ég stakk alla gestina af og fór á mótmælafundinn, þar hitti ég Hólmdísi, Sigrúnu og Láru Hönnu.  Við þögðum saman í 11 mínútur svo spjölluðum við bloggvinkonurnar saman í smá stund. 

 Ég þurfti að flýta mér heim, þegar heim var komið dró ég minn fyrrverandi og son okkar í verslunarleiðangur.  Fyrst skruppum við í Bónus og keyptum í matinn fyrir okkur öll, minn fyrrverandi borgaði þar.  Svo skruppum við í Ellingsen og keyptum úlpu á örverpið.  Við borguðum úlpuna saman, ég og minn fyrrverandi hann 30% og ég 70%  Úlpan sem við keyptum er rosalega flott Didriksen úlpa og kostaði heilar 11.400 krónur fyrir staðgreiðsluafsláttinn sem var 10%. 

Svo þegar gestirnir voru farnir bakaði ég tvær sortir af smákökum, rúsínukökur og súkkulaðibitakökur.  Eftir baksturinn var lagað til og mesta ruslið flutt út í bílskúr þar sem það fær að bíða næsta árs, ekki nenni ég að fara í sorpu svona rétt fyrir jólin.  W00t 

Ein þreytt húsmóðir, sem þarf að vinna næstu þrjú kvöld á barnum Shocking

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

OOh ég gleymdi að ég klippti Daníel og mömmu hans í kvöld.  Daníel 2ja og 1/2 árs var á fullri ferð á meðan ég klippti hann, en mamma hans var róleg.    Daníel var kominn með mjög sítt hár.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.12.2008 kl. 02:31

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú ert ógeðslega dugleg...............

Hólmdís Hjartardóttir, 21.12.2008 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband