2.1.2009 | 03:32
Þar sem tveir koma saman.
Þar er pólitískur fundur, undanfarnar vikur hefur umræðuefnið yfirleitt verið stjórnin og stjórnleysið á stjórnarheimilinu. Ég vinn að stað þar sem margir koma, og margir þeirra bara til þess að tjá sig um menn og málefni. Sjaldan hafa málefnin sem eru í umræðunni verið svona einsleit. Núna er aðallega talað um stjórnina og hvernig hún hefur farið með alþýðuna, og þá sem minna meiga sín hérna á Íslandi. Fólk er mjög áhyggjufullt, og hrætt um afkomu sína á komandi mánuðum og árum. Ég hef hlustað á fólk gráta vegna kreppunnar og algjörs vonleysis. Mitt framlag til umræðunnar er Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur. Ein mótmælaglöð
Athugasemdir
Byltingin er hafin. Það þarf að breyta hugsunarhætti.
Gleðilegt ár
Hólmdís Hjartardóttir, 2.1.2009 kl. 08:14
Það þarf víst þrjá til að fundafært teljist. Enda er í sumum einræðisríkjum bannað að hittast á almannafæri fleiri en 2. Vonandi aldrei á Austurvelli þó.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 4.1.2009 kl. 04:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.