Ég var þarna á fundinum

Mér þótti ræðan hans Lárusar Páls Birgissonar alveg frábær, maðurinn kann mjög vel að ná til fjöldans.  Ég væri alveg til í það að sjá manninn í framboði fyrir næstu kosningar sem verða í vor.  Svo gæti ég alveg kosið hana Láru Hönnu ef hún byði sig fram í nýju framboði, og ýmsa aðra sem komið hafa að mótmælum undanfarinna vikna.  Er ekki kominn tími til þess að finna þetta fólk sem við viljum sjá kosið í stjórn hins nýja Íslands?  Hvernig væri ef fólk færi að tjá sig um það sem við viljum þegar þessi óstjórn fer frá?   Ég hef ekki áhuga á því að kjósa þessa flokka sem eru í stjórninni núna.  Ég vil sjá nýtt fólk með nýjar áherslur, heiðarleika til dæmis.  Ein langþreytt á ástandinu í þjóðfélaginu okkar


mbl.is Fjórtándi fundurinn á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Hæ Kolla. Takk fyrir myndirnar.

Bestu kveðjur. Jökull

Þráinn Jökull Elísson, 11.1.2009 kl. 16:51

2 Smámynd: Sigrún Óskars

Einmitt, það þarf nýtt fólk, sem er heiðarlegt og hugsar um þjóðina ekki bara um sig sjálft.

Sigrún Óskars, 11.1.2009 kl. 22:25

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

er í svartsýniskasti

Hólmdís Hjartardóttir, 12.1.2009 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband