8.2.2009 | 01:36
Ég var svo hissa
Á þvi að sjá hann alltaf við hlið Jóhönnu í stjórnarmyndunar viðræðunum, og ég var áhyggjufull. Ég hélt að hann væri öruggur um ráðherraembætti, en sem betur fer fékk hann ekki ráðherra embætti. Maður sem er þekktur fyrir brask á ekkert erindi sem ráðherra. Ráðherrar hljóta að vera með flekklausa fortíð. En kannski er ég barnaleg. Mér finnst það ekki við hæfi, að þingmenn stundi aðra vinnu en það að vera þingmenn. Ef þingmennska væri bara aukapeningur fyrir allskonar, braskara, skýjaglópa, og draumóramenn gæti ég eins vel boðið mig fram. Einn skýjaglópur
Fjármál Lúðvíks komu í veg fyrir ráðherrastól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Soldið barnaleg í þessu bloggi allavega - hví geta menn sem reyna að ávaxta fé sitt á virkan heiðarlegan hátt verið með í því að stjórna - Lúðvík er það fyrir mennina í SF sem Jóka er fyrir ykkur "kellingaranar" opninkjaftaður á sinni meiningu og á hann mikið lof skilið fyrir það
Jón Arnar, 8.2.2009 kl. 01:50
Ég er bara ánægð með að Lúðvík varð ekki ráðherra. punktur.
Sigrún Jónsdóttir, 8.2.2009 kl. 01:55
Ég er sammála þér Jóna, var mjög ánægður með að Lúðvík varð ekki ráðherra. Mér hefur aldrei litist mjög vel á hann og hef ekki trú á honum sem ráðherra. Gott mál bara ..
Tiger, 8.2.2009 kl. 13:25
sammála þér Jóna
Sigrún Óskars, 8.2.2009 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.