15.2.2009 | 03:09
Skattaskjól
Bara þetta orð er ávísun á svik. Að skýla gegn sköttum. Ekki færðu útrásarbarónarnir peningana þangað í góðum tilgangi. Skattsvik og þjófnaðir hljóta að vera tengdir peningum sem vistaðir eru á þessari Tortola-eyju. Ekki voru peningarnir færðir þangað til þess að taka þátt í skattgreiðslum, og öllu því sem tekjum fylgir.
Ég hef verið að hugsa mikið um fólk sem lifir á fjármagnstekjum eingöngu, það borgar ekki útsvar til sveitafélaganna. Á það samt rétt á allri þjónustunni sem sveitafélögin veita? Skólaganga barnanna þeirra, er hún á kostnað okkar sem borgum skattana? Og sorphirðan, borgum við fyrir sorphirðuna þeirra? Er ekki kominn tími á það að skattleggja stóreignamenn? Og skattleggja sérstaklega menn sem lifa eingöngu á fjármagnstekjum?
Svo er löngu tímabært að afnema verðtryggingu lána, eða byrja aftur að verðtryggja launin. Annað er glæpur, og eignaupptaka. Lögleg en siðlaus.
Skattaskjólin misnotuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyr, heyr!
Sigrún Jónsdóttir, 15.2.2009 kl. 08:57
heyr heyr
Hólmdís Hjartardóttir, 15.2.2009 kl. 14:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.