Örverpið er orðið 12 ára

Fyrir tólf árum sat ég í stólnum hjá gamla tannlækninum mínum.   Klukkan var 16.00 ég var varla sest niður þegar ég fann smá sting, ég var komin 2 vikur framyfir áætlaðan fæðingardag.  Ég var alveg róleg, kláraði minn tíma hjá tannlækninum og fór heim.  Svo stuttu seinna fundust mér verkirnir heldur færast í aukana.  Ég átti ýmislegt ógert heima og eldaði ég mat og settist niður til þess að horfa á Nágranna, þegar líða fór á þáttinn fannst mér verkirnir orðnir heldur örir.  Ég fór að tína til dót til þess að taka með mér á fæðingardeildina og um leið og Nágrannar voru búnir, sagði ég við karlinn nú förum við strax.  Á leiðinni á spítalann fannst mér sá fyrrverandi keyra allt of hægt, ég bað hann að keyra hraðar.  Við komum upp á fæðingardeild klukkan rúmlega 19.00  Ég var komin með mikla og öra verki við komuna á deildina.  39 mínútum seinna var þessi litla stúlka fædd.  Hún var minnst af mínum börnum, aðeins 12 merkur eftir 42ja vikna meðgöngu.  Hún lenti í því að gleypa legvatn og var reynt að hreinsa það úr öndunarveginum.  Læknarnir fóru sér heldur óðslega og annað lungað á henni féll saman.  Hún var í gjörgæslu í nokkra daga og hefur hún braggast vel síðan.  Til Hamingju með afmælið Hulda Marín.  Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Innilega til hamingju með Huldu Marín  Fallegt nafn

Sigrún Jónsdóttir, 25.3.2009 kl. 08:29

2 Smámynd: Ragnheiður

til hamingju með hana

Ragnheiður , 25.3.2009 kl. 08:32

3 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Til hamingju með hana og daginn, knúsur

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 25.3.2009 kl. 21:10

4 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Til hamingju með stúlkuna Jóna mín.

Hilmar Gunnlaugsson, 25.3.2009 kl. 22:31

5 identicon

Sæl Jóna.

Til hamingju með dótturina, Jóna mín.

Kærelikskveðjur á ykkur báðar og að sjálfsögðu hin líka.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 01:44

6 Smámynd: Hannes

Til hamingju með dótturina Jóna.

Hannes, 26.3.2009 kl. 02:04

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Takk fyrir hamingjuóskirnar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.3.2009 kl. 02:24

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ps: Ef einhver vill skrá sig á meðmælendalista Borgarahreyfingarinnar, þá er ég með lista sem ég get komið með til viðkomandi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.3.2009 kl. 02:26

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

oops

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.3.2009 kl. 02:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband