13.4.2009 | 01:13
Greinilegur fjáraustur stjórnmálaflokkanna
Þetta eru engar smáupphæðir sem stjórnmálaflokkarnir hafa þegið undanfarin ár, fyrir lagasetninguna árið 2007. Og svo borgum við almenningur rúmar 300 milljónir að auki í flokkastarfið. Svo eru efnahagsreikningar stjórnmálaflokkanna í mínus, hvernig er þetta hægt? Er hægt að treysta svona fólki? Ég vil sjá nýtt fólk á þing, Borgarahreyfingin er sá flokkur sem ég hef mest traust til í dag. Þar er ekkert sjóðasukk og engin spilling. Þar er fólkið sem ég treysti fyrir framtíð Íslands. Ég vil benda fólki á að lesa þetta blogg -> http://andrigeir.blog.is/blog/andrigeir/entry/851503/#comment2342448 svo er hérna myndband sem Borgarahreyfingin hefur gert -> http://www.youtube.com/watch?v=htVDjAyP5j4 Þetta er fólkið sem ég treysti betur en sitjandi þingmönnum í dag.
Fengu meiri styrki árið 2006 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.