13.4.2009 | 02:50
Svínarí
Hvernig gat Kaupþing lánað þessum manni Robert Tchenguiz 230 milljarða? Vonandi tilheyra svona viðskipti sögunni á Íslandi í dag. Spillingin í bönkunum fyrir hrun er með ólíkindum. Spillingarliðið fær vonandi ekki brautargengi í kosningunum í vor. Breytinga er þörf, ég bendi fólki á það að skoða stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar. Ferskt og óspillt fólk á þing, þjóðin á þing. X-O
Kaupþing yfirtekur viðskiptaveldi Tchenguiz | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hún er með ólíkindum þessi frétt þó ekki sé nema þetta: „Tchenguiz hefur sjálfur lýst því yfir í Morgunblaðsgrein, að fullyrðingar um að fyrirtæki honum tengd hefðu notið sérstakrar fyrirgreiðslu væru algerlega ósannar.
Lán Kaupþings til fyrirtækja á vegum Tchenguiz námu 230 milljörðum króna sl. sumar eða um 46% af innlánum bankans.“
Rakel Sigurgeirsdóttir, 13.4.2009 kl. 03:34
Sæl Jóna.
Er þetta bara ekki einn af smágreiðunum sem að félagarnir í KB Banka dreyfðu til að ?????????????????????????????::::::::::::::::::...........!
Kær kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 05:04
Auðvitað er leitt hversu illa bankarnir stóðu að verki í ýmsum tilfellum en ég tel að við getum ekki kennt neinum flokki um það.
Hilmar Gunnlaugsson, 13.4.2009 kl. 19:20
reikninginn takk...
zappa (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 20:55
Hólmdís Hjartardóttir, 14.4.2009 kl. 01:21
Fylgist ekki með þessu, það er best ef að maður er að reyna að halda geði ;o)
Gleðilega páska Jóna mín, vonandi ertu búin að hafa það gott um páskana í faðmi fjölskyldunnar.
Linda litla, 14.4.2009 kl. 01:53
Nei ég var reyndar að vinna alla páskana, en átti frí í kvöld og vonandi annað kvöld. Þá ætla ég að reyna að sjá Draumalandið, í bíó...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.4.2009 kl. 02:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.