Fundur á Austurvelli á laugardaginn klukkan 15.00

SAMSTÖÐUFUNDUR HAGSMUNASAMTAKA HEIMILANNA



Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök
heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00



Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu því
miður hvergi nærri fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá
fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi (um 30%), skulda
meira en þær eiga í árslok 2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500
fjölskyldur. Þetta er 380% aukning.



Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna
höfuðstólshækkana gengis- og verðtryggðra lána. Lánin hafa rokið upp úr
öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni
krónunnar. Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á
efnahagshruninu með þessum hætti.



Hagsmunasamtök heimilanna vilja:



* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum

* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð

* Afnema verðtryggingu

* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði

* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda



Ræðumenn:

Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.

Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi



Hljómsveitin EGÓ kemur fram



TÖKUM STÖÐU MEÐ HEIMILUNUM


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband