24.6.2009 | 02:44
Kyrrð og ró heima hjá mér
Dóttir mín og sonur hennar sem búa fyrir norðan (nánar tiltekið í Fljótunum) eru búin að vera hérna heima hjá mér í rúma viku. Ég hef sofið í stofunni í 8 daga, á sófanum. Síðastliðinn laugardag var haldið uppá þriggja ára afmæli drengsins, það var fjölmenni sem mætti í afmælið hans. Þar sem þau koma bara í bæinn tvisvar á ári.
Drengurinn heitir Daníel Esekíel og verður hann þriggja ára þann 28.06 næstkomandi. Þau fóru seinnipartinn með flugi til Sauðárkróks, þar sem þau búa á veturna. Stelpan mín er í fjölbrautarskólanum á staðnum. Ekki veit ég hvenær ég sé þau mæðgin næst, gæti verið í september, vegna læknisheimsóknar Daníels. Ég er strax farin að sakna þeirra, en ég fæ loksins að sofa í rúminu mínu aftur í nótt.
Athugasemdir
http://huxa.blog.is/album/myndir/image/691244/ <- mynd af þeim mæðginum.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.6.2009 kl. 03:00
http://huxa.blog.is/album/myndir/image/691243/ <- mynd af litla prinsinum.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.6.2009 kl. 03:01
til hamingju með strákorminn :)
Hólmdís Hjartardóttir, 24.6.2009 kl. 03:32
Til hamingju með þennan flotta strák
Sigrún Jónsdóttir, 24.6.2009 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.