Kyrrð og ró heima hjá mér

Dóttir mín og sonur hennar sem búa fyrir norðan (nánar tiltekið í Fljótunum) eru búin að vera hérna heima hjá mér í rúma viku.  Ég hef sofið í stofunni í 8 daga, á sófanum.  Síðastliðinn laugardag var haldið uppá þriggja ára afmæli drengsins, það var fjölmenni sem mætti í afmælið hans.  Þar sem þau koma bara í bæinn tvisvar á ári. 

Drengurinn heitir Daníel Esekíel og verður hann þriggja ára þann 28.06 næstkomandi.  Þau fóru seinnipartinn með flugi til Sauðárkróks, þar sem þau búa á veturna.  Stelpan mín er í fjölbrautarskólanum á staðnum.  Ekki veit ég hvenær ég sé þau mæðgin næst, gæti verið í september, vegna læknisheimsóknar Daníels.  Ég er strax farin að sakna þeirra, en ég fæ loksins að sofa í rúminu mínu aftur í nótt.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

http://huxa.blog.is/album/myndir/image/691244/  <- mynd af þeim mæðginum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.6.2009 kl. 03:00

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

http://huxa.blog.is/album/myndir/image/691243/  <- mynd af litla prinsinum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.6.2009 kl. 03:01

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

til hamingju með strákorminn :)

Hólmdís Hjartardóttir, 24.6.2009 kl. 03:32

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með þennan flotta strák

Sigrún Jónsdóttir, 24.6.2009 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband