30.6.2009 | 00:36
Endurreisn atvinnulífsins?
Það er kerfisbundið verið að drepa allt atvinnulíf, með ráðstöfunum stjórnarinnar. Ég er að vinna í litlu fyrirtæki, því miður seljum við áfengi og tóbak. Heldur Steingrímur að nýjustu gjöldin á áfengi og tóbak hjálpi veitingastöðum? Hvað með tryggingargjaldið sem var að hækka?
Bætir það efnahagslífið að hækka bara þær vörur sem bein áhrif hafa á vísitöluna, sem hækkar lánin okkar sem skuldum verðtryggð lán. Mér finnst að kerfisbundið sé höggvið í sama knérunn, allt skal sótt til þeirra sem ennþá eiga nokkrar krónur í fasteignunum sínum. Eignaupptakan verður algjör, þegar búið er að mergsjúga fasteignaeigendur hvað þá?
Meiri áhyggjur af yfirstandandi glímu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl Jóna mín.
Nú er þetta bara einfaldlega KAOS !
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 01:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.