8.7.2009 | 02:16
Ég hef mestann áhuga á iðgjaldasvindlinu
Það var í fréttunum um daginn að tjón hefðu minnkað, en samt hefðu iðgjöldin hækkað. Þessi hækkun var talin óeðlileg. Ég er með allar mínar tryggingar hjá þessu tryggingarfélagi, og hafa tryggingarnar hækkað mikið undanfarin ár. Sérstaklega bifreiðatryggingarnar, þar virðast bótakröfur vera minnkandi, en iðgjöldin hækka mikið á hverju ári. Það er síðasta sort að tryggingarfélög séu farin að stunda fjárhættuspil með bótasjóðina. Vonandi fáum við að sjá lækkun tryggingariðgjaldanna á þessu ári, að áhættufjárfestingar tryggingarfélaganna séu liðnar undir lok.
Húsleit á níu stöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta skýrir óeðlilega dýr iðgjöld hér á landi. Kannski þetta sé talið þjófnaður á neytendum.
Júlíus Björnsson, 8.7.2009 kl. 03:08
ef þetta er þjófnaður frá neytendum er það gert með samþykki ríkisins og verður þar af leiðandi þaggað í hel og iðgjöldin hækkuð enn frekar til að "bæta" skaðann...
zappa (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 13:19
Ég hélt að það væri ólöglegt að gambla með bótasjóði tryggingafélaganna. Hvenær á eiginlega að koma lögum yfir þetta glæpahyski, sem hefur vaðið hér uppi undanfarin ár?
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 8.7.2009 kl. 22:44
Þessi lög er öll til og skilningur eftir vægi refsinga fer eftir tíðarandi. Vít eru öðrum til varnaðar og fyrirbyggja endurtekningu.
Júlíus Björnsson, 8.7.2009 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.