5.9.2009 | 02:42
Hættulega mjó læri
Lærin á mér eru hættulega mjó, ég stökk og fann málband um leið og ég las þessa frétt. Mín læri mælast nákvæmlega 56 sentimetrar. Það er ekki eins og ég sé ofurmjóna. Ég er með hættulegustu fituna, magafitu. Ég mun örugglega ekki verða gömul, allar líkur eru á móti mér. Ég er með kúlumaga alveg eins og amma mín hafði, hin amma mín hafði læri og rass. Það er víst betra að hafa rassa og lærafitu en magafitu.
Hættulegt að vera með mjó læri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enn einn áhættuhópur.
Eru til einhver samtök fyrir þá sem verma flesta "áhættuhópa".
Áhugaverð samtök það! Við fengjum líklega báðar inngöngu Jóna mín
Jenný Stefanía Jensdóttir, 5.9.2009 kl. 06:16
Ég er farin að hallast að því að það séu litlar líkur á að maður lendi í slysi, vegna þess að maður hlýtur sjálfur að vera SLYS!
Eygló, 6.9.2009 kl. 00:21
ég er líka í þessum áhættuflokki - með magafitu
Sigrún Óskars, 6.9.2009 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.