25.9.2009 | 01:05
Viðskiptavinur minn á barnum drakk líka gel
Hann drakk ekki sótthreinsigel, hann var með annarsskonar gel í plastflösku. Það var einhversskonar gel sem notað er í matargerð, á flöskunni var aðvörun að gelið væri ekki drykkjarhæft. Samt minnir mig að áfengisinnihald gelsins hafi verið í kringum 50%. Alkóhólistar setja það ekki fyrir sig, þótt mjöðurinn sé ekki ætlaður til drykkju. Ef drykkurinn inniheldur alkóhól, og er ódýrari en drykkurinn í Áfengisverslun ríkisins verður hann fyrir valinu.
Fangi varð drukkinn á því að drekka sótthreinsigel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef áfengismagnið fer yfir 40% verður varan sjálfkrafa manneldishæf.
Offari, 25.9.2009 kl. 01:33
Ekki sýndi svipurinn á drykkjumanninum það!!!!! Ég stóð hann að því að drekka þennan óþverra á barnum og rak ég hann út.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.9.2009 kl. 01:36
Það er fátt sem svona langt leiddir alkóhólistar drekka ekki. Maður einn sem angaði af kardimommudropum sagði mér að hann drykki ekki bara rakspíra heldur líka ýmis ilmvötn ef hann kæmist í þau. Þetta er sorglegt.
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 26.9.2009 kl. 11:02
Vodkinn er nú ekki beint góður á bragðið, þó maður láti sig hafa það.
Stefán Karl Lúðvíksson, 26.9.2009 kl. 13:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.