25.10.2009 | 01:37
Ekki yrði ég hissa
Þótt íslensku bankarnir hafi stundað peningaþvætti, ekki var bönkunum stjórnað af snillingum. Bara spilltu fólki sem reyndi að græða á hverju sem var, fólki án siðferðis. Hvenær fáum við almúginn sem fær að borga brúsann, að vita hversu víðfem spillingin var? Ég vona að fljótlega komi þetta allt í ljós í rannsóknum sem útlendingar stjórna, Íslendingum virðist ekki treystandi í þessum rannsóknum vegna allskonar hagsmuna.
Ásakanir um peningaþvætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
við fáum að vita þetta þegar erlendum rannsóknum líkur-enda höfum við fréttirnar af sukkinu úr erlendum fjölmiðlum,meðan alþingi keyrir frumvarp um afskriftir kúlulánþega í gegnum þingið,því ekki á að afskrifa neitt hjá almenningi heldur lengja í lánunum-það er sko passað að bankarnir sem settu okkur á hausinn tapi ekki neinu á almenningi......
zappa (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 01:45
Sammála þér en hrædd um að það takist seint að koma lögum yfir þetta fólk þar sem valdhafar halda yfir því hlífiskildi.
, 25.10.2009 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.