Hversu stór hluti kosningabærra manna eru 59.679

þegar þetta er skrifað eru 59.679 manns búin að kjósa á indefence.is .  Það væri spennandi að vita hversu stór hluti kosningabærra manna það er.  Þegar maður hugsar málið aðeins, þá hugsar maður t.d.  svona "ef hann samþykkir lögin! hvað þá?  Svo líka "ef hann samþykkir lögin ekki" hvað þá?  Ætli hann þori að skrifa undir?  Ætli hann þori ekki að skrifa undir?  Hvað ræður för hjá Ólafi Ragnari Grímssyni?  Ég hlakka til þess að sjá það, og útskýringarnar hversvegna hann gerði eins og hann gerði.   
mbl.is Áskorun afhent í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

        Einhverjir eiga eftir að upplýsa hversu mörg prósent kosningabærra manna það er.

Helga Kristjánsdóttir, 2.1.2010 kl. 03:10

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

201 þúsun voru á kjörskrá við alþingiskosningarnar í yfyrra.

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.1.2010 kl. 03:22

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nei 228 þúsuns, en 201 árið 1999!

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.1.2010 kl. 03:24

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta eru allavega 20% allrar þjóðarinnar, sem skrifa þarna undir. Eitthvað nálægt 30% kosningabærra.  Hærra hlutfall en nokkur flokkur hefur á bak við sig. Það voru komin 60.000 nákvæmlega kl: 08:40.

Enn er tími fram á 11.  Í Sviss arf aðeins 50.000 undirskriftir til að hnekkja lögum eða fá þjóðaratkvæði, sama hvert málefnið er.  Þetta jafnast á við 1.500.000 undirskriftir í þeirra samhengi, svo ég er nokk viss um að við erum að nálgast heimsmet.

Ef þetta verður hunsað, þá er bara að dusta rykið af heygafflinum og kyndlinum og byrja á að hreinsa út eina ferðina enn.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.1.2010 kl. 08:50

5 identicon

Egill Helga gerði smá könnun og tók út hundrað nöfn og 19 þeirra reyndust einstaklingar fæddir á árunum 2004-2008. ,,Í þessum hópi er talsvert af unglingum sem vantar ekki mikið upp á að verða kjörgengir, en líka börn – þeir yngstu á listanum eru fæddir 2004, 2005, 2007 og tveir sem eru fæddir 2008, og strax komnir í tölvuna".

Valsól (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 11:30

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er alltaf reynt að tala niður það sem gert er.  Ég vona að forsetinn okkar geri það sem honum ber hafna því að skrifa undir.  Og við fáum að kjósa um málíð allt annað er svindl og skekking á lýðræðinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.1.2010 kl. 12:51

7 Smámynd: Ragnheiður

fann þetta

Á kjörskrá í apríl á síðasta ári voru 227.896 kjósendur af þeim hafa 56.089 manns skráð sig á undirskriftarlista sem hefur verið virkur á netinu í allnokkurn tíma

Gleðilegt ár og takk fyrir samskiptin á árinu sem er nýliðið :)

Ragnheiður , 2.1.2010 kl. 21:05

8 identicon

Þetta eru rétt rúm 24.6% kosningabærra manna.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 23:25

9 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Það hlýtur að mega leyfa 16 - 17 ára krökkum að kjósa á Indefence, fyrst börn allt niður í þriggja ára gátu fengið tugi milljóna kúlulán.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 2.1.2010 kl. 23:40

10 identicon

Og eiga í þokkabót að borga þessar skuldir.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband