Vörugjöld og lúxustollar á barnavörum?

Ég er með smá hugleiðingu um vörugjöld á barnavörum, ef ég man rétt eru ekki allar barnavörur ennþá með lúxus tollum og vörugjöldum? Ég er sex barna móðir og mér finnst ennþá að barnafólk sé skattpínt sérstaklega umfram aðra.  Það er alveg sama hvað þarf að kaupa fyrir barnið það kostar allt of mikið.  Barnavagnar, barnabílstólar og flestar aðrar barnavörur eru óheyrilega dýrar hérna á Íslandi.  Það hefur aldrei komið til mála hjá hinu háa alþingi að leiðrétta þetta fyrir barnafólkið. Allavega ekki svo ég muni Errm  Ég er nú sem betur fer hætt að eiga börn, en börnin mín búa við sama vandamál að vera skattpínd vegna barneigna.  Crying


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband