Bíllinn minn kominn á götuna aftur eftir viku bilun!!

Bíllinn minn fékk gangtruflanir í fyrsta skipti síðan ég keypti hann fyrir 6 árum og 4 mánuðum. Hann var tvo daga í stæði þar sem ég lagði honum og svo kom bifvélavirkinn minn og sótti hann fyrir mig.  Á verkstæðinu gekk illa að fá hann til að ganga, en þar sem ég hef góðan bifvélavirkja fann hann hvað var að Grána mínum, eitthvað var olían að fara á villigötur og lenti á kertunum og eitthvað skeði með háspennukeflið, þannig að Gráni minn var alveg að gefast upp, núna hefur hann nýtt ventlalok og eitthvað var borað út, og annað sett í staðinn einhversstaðar í honum!!!!Woundering   Og núna er Gráni minn með kraft á við aðra Síríona hann drífur upp brekkur og allt virðist vera í lagi með hann!  Og viðgerðin kostaði mig ekki aleiguna Smile  Ein frekar ánægð, með bifvélavirkjann sinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband