Að taka þátt í mótmælum

Það er mitt val að mæta á mótmælafundina sem haldnir eru á Austurvelli á hverjum laugardegi klukkan 15.00.  Ég hef ekki ennþá tekið þátt í mótmælum þar sem aðgerðasinnar mótmæla.  En núna er mælirinn að fyllast hjá mér, spillingin og óráðssían er miklu meiri en ég hafði ímyndað mér.  Ég mun samt aldrei taka þátt í ofbeldi eða skemmdarverkum, en táknrænar aðgerðir eins og hafa verið undanfarna daga höfða meira til mín.  Eins og fótboltinn í Landsbankanun og blóma-afhendingin til skattstjórans og bankastjóra Nýja Kb bankans.  Þannig aðgerðir eru til fyrirmyndar að mínu mati.  Vonandi hitti ég bloggvinina mína á mótmælafundinum á morgun, og kannski einhverja vini eða kunningja.  Sjáumst öll á Austurvelli á morgun klukkan 15.00
mbl.is Stoltir glæpamenn og fjölskyldualbúm lögreglunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Gleðilegt ár, Jóna mín!! Ég er alveg sammála þér með mótmælin, ég styð þessi friðsamlegu en er á móti skemmdarverkunum.

Lilja G. Bolladóttir, 10.1.2009 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband