Hlass

Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.  Eða lítill steinn þungri konu.  Þegar ég var að leggja af stað í göngutúr með hann Úlf minn í kvöld datt ég.  Beint fyrir framan tröppurnar mínar var smá kantsteinn, sem Síminn reif upp þegar gangstéttin mín var grafin í sundur fyrir 3 vikum síðan.  Ég sé ekkert í myrkri og steig ég á þennan stein og datt á hnén, ( ææ óó) ég er hrufluð á báðum hnjám og er öll lurkum lamin.  Shocking   Hundurinn minn varð hálf hræddur, þegar undirrituð féll með glans á fjóra fætur.  Ég ætla ekki að segja ykkur hvað mér er illt í hnjánum núna, og í öðrum ökklanum og í báðum höndunum.  Það hefði verið flott að eiga myndir af þessu, svona myndband til að senda í fyndnar fjölskyldumyndir.  W00t    Ég vona bara að ég verði ekki farlama á morgun.  Ein seinheppin.  ps: Ég fór samt með hundinn minn hann Úlf í göngutúrinn, og verkurinn í hnjánum lagaðist þegar leið á göngutúrinn. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vona að meiðslin séu ekki alvarleg Jóna mín

Sigrún Jónsdóttir, 21.2.2009 kl. 00:29

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ekki hef ég trú á því að meiðslin séu alvarleg, ég geng óhölt.  Allavega núna í kvöld, en stundum koma eftirköst daginn eftir.  Ég bara krossa fingur og vona það besta. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.2.2009 kl. 02:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband