Ræfilstuskan

Er þetta ekki gjaldið þegar óheiðarlega er staðið að viðskiptum? 

Þarf ekki að gera ráð fyrir lögfræðikostnaði, þegar vafasöm viðskipti eru stunduð?

Ekki vorkenni ég þessum manni, hann tók t.d þátt í vafasömum viðskiptum með hlutabréf í Kb banka. 

Ef menn geta ekki stundað lögleg viðskipti, ættu þeir kannski að hætta viðskiptum...


mbl.is 2 milljónir punda í lögfræðikostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjóllinn er flottari á þeirri sem er kvenlega vaxin

Enn og aftur heldur fjölmiðlafólkið að hamra á því að grindhoraðar konur séu bestar. 

Og það að kona skrifi þennan pistil, skammast þú þín Marta María.

Þú ert eins og flestir fatahönnuðir, konur sem líta út eins og ungir karlmenn fá allt hrósið.

Konur með kvenlegan vöxt eru ekki nógu góðar til neins, allavega ekki vera í kvenlegum fötum.

Anorexíudýrkunninni hlýtur að ljúka bráðlega, fólk á að láta heyra í sér þegar svona ranghugmyndum er komið inn hjá fólki.


mbl.is Þessi kjóll er ekki flottur á öllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig langar í svona tré í garðinn minn

Ætli það sé hægt að kaupa svona kirsuberjatré einhversstaðar hérna á Íslandi? 

Ég er mikil áhugamanneskja um ávaxtaræktun og langar mig til þess að prófa að rækta ávaxtatré hérna á nesinu. 

Ég fór í gróðrastöðina Mörk í gær og voru öll ávaxtatré uppseld, þau seldust öll upp sama daginn og gróðrastöðin opnaði í vor. 

Ég fann tvö Sólberjatré og eitt Hindberjatré sem ég keypti. 

Ég býst samt ekki við uppskeru af þessum litlu plöntum í ár, en vonandi fæ ég nokkur ber á næsta ári. 


mbl.is Kirsuberjatré í Hljómskálagarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipað atvik gerðist á Íslandi

Fyrir nokkrum árum síðan gerðist svipaður atburður á Íslandi, ungar stúlkur réðust á skólasystur sína og hlaut stúlkan alvarlegan skaða af árásinni.

Ekki man ég hvort stúlkurnar sem réðust á skólasystur sína fengju harða dóma fyrir árásina.

Ef ég man rétt þurftu þær ekki að fara einn dag í fangelsi og ekki greiða fórnarlambinu krónu í miska og skaðabætur. 

Unga konan sem varð fyrir árásinni þarf fólk í fulla vinnu til þess að sjá fyrir daglegum þörfum sínum.

Árásaraðilarnir ættu að mínu mati að borga fyrir alla umönnun sem fórnarlamb þeirra varð fyrir.


mbl.is Börðu stúlku þar til hún missti meðvitund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna lýgur

Hún fullyrðir að ofurlaunaliðið, fjárglæframennirinr og stóreignaelítan fái ekki að soga til sín hagvöxtinn sem framundan sé. 

Hvaða hagvöxt? 

Það er allt á niðurleið, nema skuldirnar.

Svo kennir hún Sjálftökuflokkinum um hrunið, eins og hún hafi ekki verið í hrunstjórninni. 

Svo bullar hún um jafnaðarstefnu, er ekki í lagi með hana? 

Er jafnaðarstefnan allt í einu orðin mikilvæg hjá Jóhönnu? 

Hún sem sló skjaldborg um fjármálaelítuna, sjálftökuliðið og útrásarbarónana, þá var jafnaðarstefnan ekki að þvælast fyrir henni.


mbl.is Ofurlaunaliðið fær ekki að soga til sín hagvöxtinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var eina fréttin það sem Spánn kom fyrir, Spánarsveifla, á Spáni sveifla þeir kylfum.....

Það þykir víst ekki fréttaefni hjá íslenskum fjölmiðlum að spænsk yfirvöld hafa ráðist á mótmælendur í dag. 

 Lögreglan á Spáni hefur fengið fyrirskipanir um það að lemja friðsama mótmælendur með kylfum.

Ég vil benda fólki á það að skoða allavega fyrstu 3 myndböndin sem eru á þessum hlekk sem ég læt fylgja með þessari færslu.

http://bofs.blog.is/blog/bofs/entry/1169910/

Það má ekki þagga þessar fréttir niður, ef fréttastofurnar sjá ekki ástæðu til þess að birta svona stórfréttir? 

Til hvers eru þær eiginlega? 

Maður spyr sig....


mbl.is Spánarsveifla í Silfurbergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðfræðineminn sem þykist hafa vit á fjármálum

Eitt er alveg víst að Steingrímur og Jóhanna tóku stöðu með fjármagnseigendunum.

Þau skötuhjú hafa meiri samúð með erlendum vogunarsjóðum og erlendum kröfuhöfum en íslenskri alþýðu.

Mér þykir orðið jafnaðarmaður skammaryrði í dag, þau hafa saurgað það orð.

Jöfnuður virðist ekki vera orð sem þau þekkja, ójöfnuður er að festast í sessi.

Svo vil ég nota tækifærið og skamma íslenskan almenning, ég tók þátt í kosningu vegna nýgerðra kjarasamninga og kaus ég að sjálfsögðu NEI. 

Ég skil ekki hvers vegna samningarnir voru samþykktir, verðrtygging lánanna okkar er búin að éta kjarabæturnar sem áttu að koma. 

Á meðan við erum með verðtryggð lán, verðum við að hafa launin okkar í sama gjaldmiðli = verðtryggð.


mbl.is Steingrímur íhugi stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli hann nefni "venjulega fólkið"

Er ekki hægt að halda Steingrími á Íslandi? 

Ætlar hann að fara að bulla um Skjaldborgina um heimilin sem hann lofaði?

Eða ætlar hann að tala um eignabrunann sem "venjulega fólkið varð ekki fyrir"

Hann Steingrímur ætti að sjá sóma sinn í því að hætta að ljúga að sjálfum sér.

Hann hefur misst allan trúverðugleika, hann er gasprari af verstu sort...


mbl.is Steingrímur til Írlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur afborgun af Icesave send af stað

Ég gat nú ekki annað en hlegið þegar ég las þetta fyrr í kvöld...

http://sannleikurinn.com/heim/naesta-greidsla-logd-af-stad

Mér finnst kaldhæðnin í þessari sögu alveg æðisleg.

Sem betur fer virðast túristar hafa skilning á aðstæðum og biðlund líka.


mbl.is Flugi aflýst til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig ætli þetta gos verði

Verður það eins eða svipað og Eyjafjallajökulsgosið, að hafa áhrif á flugsamgöngur?

Eða verður þetta meira gos, sem hefur meiri áhrif vegna mengunar og öskufalls?

Þessi byrjun á gosinu er víst með því mesta sem mælst hefur í svona Grímsvatnagosum.


mbl.is Gæti haft áhrif á flugumferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband