Hverja telur Steingrímur vera venjulega fólkið?

Er það unga fólkið okkar sem reynt hefur að koma þaki yfir fjölskyldur sínar í aðdraganda hrunsins?  Þegar "allt flæddi hérna í ódýru"  lánunum? 

 Er það miðaldra fólkið með verðtryggðu lánin sín? 

Heldur Steingrímur kannski að við séum ekki þjóðin?

Burt með þennan mann úr stjórninni, hann þekkir ekki sinn vitjunartíma....


mbl.is „Ekki hjá venjulegu fólki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein fallegasta mynd sem ég hef séð

Ég veit að það er vandasamt að taka góðar norðurljósamyndir, ég hef reynt það sjálf að taka myndir af þeim.

Mínar myndir hafa verið óskýrar og grófar, og mjög oft hreyfðar líka.

Þessi ljósmyndari hlýtur að vera með mjög góða myndavél, og þar fyrir utan vera hæfileikaríkur ljósmyndari.....

Ég efast um að meðalskussar með ódýrar myndavélar geti tekið svona fallegar næturmyndir...


mbl.is „Fegurð næturhiminsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tek undir ályktanir Hreyfingarinnar

Það er löngu ljóst að stjórnin hefur enga stjórn á ástandinu á Íslandi í dag, stjórnin er að leiða þjóðina fram af efnahagslegu hengiflugi. 

Jóhanna og stjórn hennar hafa viðhaldið stjórn fjármálaelítunnar á efnahagslífinu, og verið dragbítur í atvinnusköpun.  Þar er ekkert að gerast..


mbl.is Fram af efnahagslegu hengiflugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krían komin

Ekki hef ég heyrt í kríunni þetta vorið, en hrossagaukurinn, lóan, tjaldurinn, þrestirnir, starrarnir, hettumávarnir og svartbakarnir hafa látið í sér heyra.

 Svo er einhver nýr fugl sem ég hef aldrei heyrt í áður úti í garði hjá mér, en fallega syngur hann fyrir okkur hérna á Nesinu...


mbl.is Krían komin á Nesið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferðatafir

Ég var á ferðinni um svipað leiti og flestir sjúkra og lögreglubílar höfuðborgarsvæðisins voru staddir við Hörpuna.

Sjúkra og lögreglubílarnir voru ekki að valda töfunum, nei það voru umferðarljósin nýju við Hörpuna sem ollu töfunum.

Umferðarljós þar sem girðing var fyrir innkeyrslunni að Hörpunni...


mbl.is Hættuástandi aflýst í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi er þetta bara byrjunin

Það er alveg ábyggilegt að Kaþólska kirkjan hefur ekki staðið sig vel undanfarna áratugi.

Það virðist hafa verið algengt að prestar sem urðu uppvísir að misnotkun, voru færðir til.

Þeim var í raun sigað á sakleysingja annarsstaðar.

Ég vona að Kaþólska kirkjan hafi heilindi til þess að bæta fórnarlömbum klerkanna, kynferðislegu notkunina rausnarlega. 

Svo þarf náttúrulega að fjarlægja þá presta sem hafa sannanlega misnotað börn, senda þá í Vatikanið refsa þeim af hörku...

Og náttúrulega banna þeim að umgangast börn....


mbl.is Stefnir Páfagarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta spá?

Hvernig getur blaðamaðurinn fullyrt að Ísland verði númer 21 í úrslitum á laugardaginn? 

Það eru engin úrslit ráðin fyrir laugardaginn.

Eurovision söngvakeppnin verður haldin á laugardaginn kemur, þar mun íslenska liðið líklega verða númer 21 í rásröðinni. 

Úrslitin ráðast ekki fyrr en á laugardaginn...


mbl.is Ísland númer 21
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorboðinn ljúfi, Garðhumlan

Ég hef haft það fyrir reglu undanfarin 20 ár að láta ekki sprauta eitri á trén í garðinum mínum. 

Trén mín hafa ekki vaxið illa, og ekki verið meira ormétin en tré nágranna minna. 

Í mínum garði er fullt af lífi, Garðhumlur, ánamaðkar og fuglar. 

Svo náttúrulega dýrin mín öll, ég vil ekki eitur sem getur skaðað dýrin mín og lífríkið í garðinum...

Það er eins og að náttúran finni alltaf eitthvað jafnvægi, ekki láta eitra garðana ykkar.....


Auðvitað á að fella þessa samninga

Þessir nýju kjarasamningar eru verkalýðsforystunni til háborinnar skammar. 

 Auðvitað á verkalýðurinn að fella þessa samninga. 

Ég er sammála að þessir samningar séu stórvarasamir. 

Það á ekki að semja til þriggja ára á þessum óvissutímum, það er ekki tímabært.

Svo er annað sem fer fyrir brjóstið á mér, það er að allt í einu um næstu áramót á að verðtryggja persónuafsláttinn. 

Þýðir það ekki það að ekki eigi að afnema verðtrygginguna, þrátt fyrir að öll skilyrði séu núna fyrir niðurfellingu á henni? 

Maður spyr sig

PS: Ég hefði viljað sjá verulega hækkun persónuafsláttarins og annað sem gagnaðist þeim lægst launuðu í þessum kjarasamningum...  t.d krónutöluhækkanir líka....  


mbl.is Vilja að launþegar felli samningana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar áhyggjur

Af bílaskorti á ódýrum bílum, minn gamli góði bíll er til sölu.

Hann er Daihatsú Síríon árgerð 2000.  Hann er nýskoðaður, með nýja bremsudiska og bremsuklossa að framan. 

Hann hefur reynst mér ótrúlega vel undanfarin 10 ár og er aðeins ekinn 91.000 kílómetra, hann lenti að vísu í smá vandræðum um daginn.

Þá klessti undirrituð aftan á annan bíl, alveg óvart :)

Ef einhver er laghentur, þá er kjörið tækifæri til þess að eignast frábæran bíl, sem bilar aldrei :) 

Tilboð óskast send hingað, ég skoða allt....

PS: svo er hann mjög sparneytinn....


mbl.is Stefnir í bílaskort í landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband