Offituvandamál hins vestræna heims

Það er staðreynd að offita færist í vöxt í hinum vestræna heimi.

Ég held að svipuð þróun verði víðar en í hinum vestræna heimi.

Græðgin verður mörgum að fjörtjóni.

Ég er ein af þeim sem þjást af þessari plágu.

Ég kann mér ekki hóf, þegar kemur að mataræði.

Mér finnst allur matur góður, og borða yfirleitt af bestu list.

Það eru greinilega forréttindi okkar sem búum við velmegun að borða of mikið.

Það þótti einu sinni í gamla daga eftirsóknarvert að vera vel í holdum.

Ég horfði á gamla finnska mynd í síðustu viku, þegar ég var í Finnlandi.

Myndin var gerð á fimmta áratug síðustu aldar, þar voru allar konur eldri en unglingar frekar þéttar á velli.

Ég man þegar ég var barn, þá voru ömmur mínar báðar þybbnar og flestar aðrar konur sem ég þekkti.

Í dag eru breyttir tímar, núna er feitu fólki mismunað.

Ég þekki það af eigin raun.

Núna eru grindhoraðar konur eftirsóknarverðar, en feitar ekki.

Ég er ekki hissa á hárri tíðni Anorexíu og allskonar átröskunarsjúkdómum.

Það er eftirspurn eftir svoleiðis konum.  


mbl.is Offitusprenging í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ungmenni gera aðsúg að lögreglu.

Það er víst frekar algengt þegar lögreglan er að störfum í miðbæ Reykjavíkur um helgar að hún verði fyrir aðsúgi. 

Ætli það séu börn fólksins sem ræðst á lögregluna um helgar, sem gera aðsúg að lögreglunni í úthverfinu í miðri viku?

Maður spyr sig....


mbl.is Gerðu aðsúg að lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin er svo sparsöm

 Heitir þetta ekki svindl og svínarí.

  Ætli Hrannar B. eða vinur hans Helgi H.  hafi verið settir í það að bjarga stjórninni frá fjárútlátum?

Þeir eru ábyggilega mestu fjármálasnillingar þessarar ríkisstjórnar.

Ætli þeir hafi kannski fengið flokksfélaga sína sem eru alltaf að tjá sig um fjármál?

  Háskólamennina sína, til dæmis Þórólf og Eirík Stefánsson, evrópufræðing.... 

 Og ákafan innlimunarsinna í ESB til þess að tjá sig? 

Ég er tilbúin til þess að mótmæla hvar sem er og hvernær sem er, mér er löngu nóg boðið. 

Það þarf að koma þessari ríkisstjórn frá áður en hún verður búin að flæma allt unga og menntaða fólkið okkar úr landi, eða koma því á atvinnuleysis skrána....


mbl.is Sækja um bætur á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað bíður almennings í Tripoli og í allri Líbíu?

Ég hef verið að fylgjast með fréttum af innrásinni í Líbíu og virðist fjöldinn sem fagnar þarna í beinni útsendingu frelsinu feginn.

Er fólkið raunverulega frjálst?

En hvar er Gaddafí? 

 Hefur hann flúið? 

Hér kemur hlekkur á beina útsendingu fréttastofunnar

http://aljazeera.com/watch_now/ 


mbl.is Uppreisnarmenn á Græna torginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugaverð myndbönd um verðtrygginguna og mismunandi reikniaðferðir, hvað finnst þér?

Þetta var fyrsti hluti......

Og annar hluti...

Og sá þriðji og síðasti, verði ykkur að góðu...


Vandamálið er hvað?

Einhverjir atvinnufjárfestar tapa kannski peningum? 

 Það verður annað hrun? 

Það er löngu fyrirsjáanlegt. 

Það þarf nýtt kerfi, þetta skuldavandamál heimsins er tilbúið vandamál. 

Núna þarf bara að afskrifa skuldir hér og þar, þá gengur allt betur!

Eða hvað finnst þér? 

Það er staðreynd að skuldsetning þjóðanna er óraunhæf, bankar og verðbréfamarkaðir hafa haft frjálsar hendur í allt of langan tíma.

Ef það tekur þjóð hundruð ára að borga niður skuldir, þá er framtíðin ónýt fyrir það land og þegnana þar.


mbl.is Erfið vika framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær þessi ungi maður !

Pilturinn talar um að hið góða muni sigra hið illa, en ætli sama eigi við hérna á Íslandi? 

Maður spyr sig? 

Ég var að glugga í stefnuskrá Samfylkingarinnar og lítur hún ágætlega út á blaði, ef bara að þingmenn Samspillingarinnar hefðu stefnuskrána til hliðsjónar af og til, þá værum við í góðum málum. 

Hér er stefnuskráin, þetta er afritað af síðu Samfylkingarinnar.

"

Stefnulýsing Samfylkingarinnar

Samfylkingin er stjórnmálaflokkur sem aðhyllist markmið og leiðir jafnaðarstefnunnar. Stefna flokksins og störf byggjast á frelsi og lýðræði, kvenfrelsi, jafnrétti og samábyrgð. Í samræmi við stefnu sína hyggst flokkurinn og eiga náið samstarf við verkalýðshreyfinguna og frjáls félagasamtök, og vinna með öðrum jafnaðarflokkum á alþjóðavettvangi.

Það er grundvallarsjónarmið Samfylkingarinnar að sérhverjum einstaklingi verði tryggð skilyrði til að rækta hæfileika sína og nýta í þágu eigin velferðar, samfélags síns og komandi kynslóða.

Við viljum frelsi einstaklingsins sem frelsi allra einstaklinga, óháð kyni, kynþætti, trúar- og stjórnmálaskoðunum, félagslegum uppruna eða öðrum mun manna.

Við teljum að frelsi fylgi ábyrgð gagnvart frelsi annarra, ábyrgð sem ber að tryggja með mótun heilbrigðra félagstengsla. Við viljum samfélag sem geri sérhverjum einstaklingi kleift að njóta fjölbreyttra lífstækifæra og að læra um leið að veita öðrum slíkt hið sama.

Við viljum víðtækt lýðræði. Fulltrúar almennings taki ákvarðanir um sameiginleg málefni fyrir opnum tjöldum. Sem flestar ákvarðanir verði teknar beint af þeim hópum fólks sem þær varða. Einstaklingar, samtök á vinnumarkaði og frjáls félagasamtök hafi sem mestan sjálfsákvörðunarrétt.

Við viljum að jöfnuður verði tryggður með samhjálp. Allir þegnar samfélagsins eiga rétt á heilbrigðisþjónustu, menntun og annarri samfélagslegri þjónustu óháð efnahag. Öllum þarf að tryggja mannsæmandi lífsviðurværi óháð möguleikum til eigin tekjuöflunar. Samhjálp á aldrei að vera ölmusa og á ekki að gera þá sem hana þiggja að annars flokks samfélagsþegnum, heldur efla sérhvern einstakling til að nýta hæfileika sína sér og öðrum til hagsbóta.

Við leggjum áherslu á jafnræði kynja á vinnumarkaði, í fjölskyldulífi og hvarvetna á vettvangi samfélagsmála. Við viljum vinna gegn núverandi misrétti og skapa samfélag þar sem bæði kyn geta tekið fullan þátt í atvinnulífi og sinnt um leið uppeldi og öðru fjölskyldulífi af eðlilegri ábyrgð og ánægju.

Við viljum beita almannavaldinu með hófsemd, með áherslu á að tryggja mannréttindi og lífstækifæri allra einstaklinga og gegn hvers konar misrétti.

Fyrirheit um að hver einstaklingur geti notið sín á samleið með áherslu á efnahagslegar framfarir. Mannauður er nú lykilatriði í atvinnulífi sem og á öðrum sviðum samfélagsins. Menntun verður því leiðin til farsældar hjá einstaklingum, fyrirtækjum og þjóðum. Við viljum að menntakerfi framtíðarinnar þjóni hlutverki nýs jöfnunartækis.

Stofnfundur Samfylkingarinnar 5. og 6. maí 2000

Borgarleikhúsið Reykjavík


mbl.is „Þú skalt vita að þér mistókst"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak

Það er ekki sömu sögu að segja af íslenskum yfirvöldum, hérna virðast allir sem komu nálægt bankahruninu vera verndaðir. 

Íslensk stjórnvöld hafa kosið að vernda bankana á kostnað fólksins, sem er skammarlegt.

Allt í nafni bankaleyndar...   Mér finnst full ástæða að aflétta bankaleyndinni þar sem það á við, rannsóknarmenn/konur verða að hafa fullan aðgang að öllum gögnum málsins...


mbl.is Ákærðir fyrir að aðstoða við skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrst með fréttirnar á mbl.is?

Eden í Hveragerði stendur í ljósum logum, er alelda. 

Samkvæmt hinum netmiðlunum. 


Lauslæti

Aðal fréttirnar, þær sem fá mesta lesningu virðast vera með hverjum "fræga" fólkið stundar kynlíf.

Mér þykir þetta bera vott um hnignun, að hampa framhjáhaldi og kynlífshneykslum. 

Einu sinni þótti það vera gott að stunda ekki framhjáhald og vera siðsamur, sú er ekki raunin í dag.


mbl.is Ashley Cole svaf hjá flugfreyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband