Ætli þetta sé alvöru?

Eða bara fölsk mæling? 

Ég var að skoða vef veðurstofunnar áðan og sá ég það að jarðskjálfti uppá tæpa 5 er skráður á  sjálfvirka mælinum.

Það verður spennandi að sjá hvort Katla sé vöknuð til lífsins og farin að gjósa... 

Ég hlakka til að lesa um það, hvað sé í gangi í Mýrdalsjökli....


Mótmælin voru friðsöm

En mjög hávær, enda var það tilgangurinn.

Að láta í sér heyra. 

Krafan var að minna þingmenn á heimilin í landinu, það er búið að slá skjaldborg um Alþingi, bankana, fjármagnseigendurna.

Það er kominn tími á það að afnema verðtrygginguna og leiðrétta forsendubrestinn sem varð á verðtryggðum lánum og ólöglegu myntkörfulánunum í kjölfar hrunsins.

Ef heimilunum verður ekki bjargað, hvað þá? 

Maður spyr sig....


mbl.is Samstaða á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mættu þá sjálfur og hagaðu þér friðsamlega!

Ég hef ekki trú á því að þú þorir að mæta á mótmælin sjálfur, þú átt ekkert með það að segja öðrum hvernig á að mótmæla.

Við sem höfum mótmælt ætlum ekki að vera með nein læti, ef mótmælin verða ekki friðsamleg er það ekki okkur að kenna.

Ég ætla sjálf að mæta og hafa með mér drullusokk, og standa heiðursvörð um alþingismenninna. 

Lögreglan ætlar ekki að gera það, ég held að það sé af því góða að lögreglan með óeirðasveitina sína stofni ekki til óeirða.


mbl.is Hvetur til friðsamlegra mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skal taka það að mér

Ég ætla að mæta á laugardaginn og hef ég ákveðið að standa heiðursvörð um þingmenn.

Það er með glöðu geði sem ég geri þetta.

Þetta mun ég hafa með mér.

Drullusokk, eyrnatappa og barefli til framleiðslu hávaða.

Alþingi á skilið heiðursvörð fólks sem lyftir drullusokkum til að heiðra þingmennina. 

Þingmennina sem hafa tekið sér stöðu með fjármálastofnunum og skilanefndunum. 


mbl.is Lýsa furðu á ummælum þingmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirboði stærra eldgoss?

Það er vitað að Katla gamla hefur gosið á ca. 50 ára fresti að meðaltali frá landnámi.

Ég var í jarðfræðikúrs í Valhúsaskóla árið 1977, þá talaði kennarinn um að Katla væri komin nokkur ár yfir þessi venjubundnu 50 ár. 

Síðan þá hef ég beðið eftir gosi úr Kötlu, en nei hún hefur ekki gosið.

Nema þetta hafi verið smágos, það hefur ábyggilega ekki losað um spennuna sem hefur verið að hlaðast upp í Kötlu, kvikuhreifingar hafa verið greindar á jarðskjálftamælum.

Svo er þenslan í fjallinu víst orðin mjög mikil, og reglulegir smáskjálftar minna okkur á hættuna sem stafar af eldgosi í Kötlu.

Við megum þakka fyrir hversu gott almannavarnakerfið okkar er orðið, flóttaáætlanir hafa verið æfðar undir jöklinum og viðbragðsáætlanir tilbúnar, þegar hún Katla gýs eins og hún á vanda til.


mbl.is Lítið eldgos í Kötlu í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða dónaskapur er þetta?

Hvernig dettur ökumanninum það í hug að snarhemla? 

Er ekki í lagi heima hjá honum?

Hvers átti ökumaður bifhjólsins að gæta?

Það er skrifað í lög hérna á Íslandi að hafa ávalt gott bil á milli ökutækja, ætli bifhjólamaðurinn/konan hafi virt það? 

Ég sjálf þoli ekki ökumenn sem hanga í "rassinum" á bílnum mínum þegar ég er úti að keyra. 


mbl.is Nauðhemlaði fyrir framan bifhjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vita íslenskir stjórnmálamenn það?

Ég efast stórlega um það að forsvarsmenn sitjandi ríkisstjórnar viti hvað mjólkin kostar.

Íslenskir stjórnmálamenn þurfa ekki að velta fyrir sér hverri krónu, og hugsa ef ég kaupi ( þetta eða hitt)  þá á ég ekki fyrir mat handa börnunum mínum út mánuðinn.

Allt of margir íslenskir stjórnmálamenn hafa aldrei þurft að hafa áhyggjur af því að eiga peninga fyrir næstu máltíð.

Fátækt á Íslandi hefur ekki verið jafn mikil og hún er í dag, í marga áratugi.


mbl.is Veit hvað mjólk kostar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Og hér er að spretta upp ný forréttindastétt bankamanna og innheimtulögfræðinga. Sú stétt er á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar en á kostnað íslensks samfélags."

Ég vil hvetja fólk til þess að lesa allan pistil Margrétar Tryggvadóttur.

Þessi 110% leið er algjört klúður sitjandi stjórnar, fólk sem fór þessa leið er illa statt í dag.

Ábyrgum íbúðarkaupendum sem sparað höfðu fyrir íbúðarkaupin er refsað en þeim sem tóku 100% lánin fyrir íbúðum sínum fá allskonar fyrirgreiðslu í kerfinu.

Þeir sem notuðu sparifé, töpuðu því.

Þeir sem eru og hafa verið ráðdeildarsamir, er refsað. 

Upptaka eigna er stunduð í endurreistu bönkunum.

Bönkunum sem ríkisstjórnin seldi í hendur erlendra vogunarsjóða. 


mbl.is Fór tvisvar í gegnum 110% leiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki kaupa húsnæði

Það er mín ráðlegging til ungs fólks, þið hafið ekki efni á því að borga af lánum sem eru verðtryggð. 

Þótt þið standist greiðslumat í dag, þarf það ekki að vera raunin eftir ár.

Á meðan launin ykkar eru ekki verðtryggð eins og lánin sem standa fólki til boða í dag.

Það er ekki eins íþyngjandi að borga leigu, það er að segja ef hentugt leiguhúsnæði er í boði.

Varið ykkur á mismunandi gjaldmiðlum!!! 

Verðtryggð lán kalla á verðtryggð laun, ef ekki þá er tjónið ykkar. 

Eignaupptakan virðist lögleg, en siðlaus er hún.

Burt með verðtryggðu lánin... 


mbl.is Hjálpi ungu fólki að kaupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst við hæfi að birta ljóð í tilefni dagsins

Hluti af þessu ljóði hefur verið að ganga á Fésbókinni. 

Ljóðið heitir Lífsþor.

 Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.

Það þarf viljastyrk til að lifa eigin ævi,
einurð til að forðast heimsins lævi,
vizku til að kunna að velja og hafna,
velvild, ef að andinn á að dafna.

Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir verða að taka
og enginn tekur mistök sín til baka.

Því þarf magnað þor til að vera sannur maður,
meta sinn vilja fremur en fjöldans daður,
fylgja í verki sannfæringu sinni,
sigurviss, þó freistingarnar ginni.

Ljóðið er eftir Árna Grétar Finnson.


mbl.is Samstarfinu við AGS lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband