Lýsispillur vinsælar

Ég er búin að vera að leita af lýsispillum í versluninni sem ég versla oftast við, þar hef ég ekki fundið lýsispillur í tvær vikur. 

Svo sá ég miða í versluninni í dag, þar sem sagði að lýsispillurnar væru við afgreiðslukassana. 

Svipað átti sér stað fyrir 2-3 árum þá var ekki hægt að finna rakvélar og rakvélablöð nema við afgreiðslukassana.

Þessi útlendu þjófagengi hafa látið greipar sópa hérna í allt of langan tíma næstum óáreitt.

Er ekki kominn tími á öryggisverði í verslunum, óeinkennisklædda?   Hvaða gagn er af myndavélakerfunum sem eru allsstaðar?  Leysa þau vandann?  Hafa margir þjófnaðir verið upplýstir vegna eftirlitsmyndavéla? 


mbl.is Á leið úr landi með mikið magn þýfis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er sammála Martin Wolf

Samt er ég enginn sérfræðingur eða menntuð í fjármálagerningum.

Ég er bara húsmóðir sem hef reynt að lifa ekki um efni fram. 

Krónan er okkar og sem slík gott hagstjórnartæki fyrir okkar litla land.

Það voru glæpamenn sem settu krónuna í hættu með árásum á hana. 

Þessvegna varð hrunið hérna svona stórt.

Ég ætla að mæta á morgun og mótmæla við Hörpuna, endurreisn fjármálakerfisins hefur ekki tekist að mínu mati. 

Ég vil biðja fólk að lesa þessa færslu 

http://raksig.blog.is/blog/raksig/entry/1200500/  


mbl.is Wolf segir krónuna reynast vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirspurn

Ég var beðin um það að senda fyrirspurn til ESB sinna. 

Fyrirspurnin er svona. "Er það satt að ef við göngum inn í ESB, þurfum við að hafa sendiráð í öllum löndum ESB"? 

Ef einhver veit svarið, vinsamlegast skrifið það í athugasemd....

Með fyrirfram þakklæti.


mbl.is 49% Breta segjast vilja úr ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sambandsleysið er ekki bara þarna

Núna á að fara að halda ráðstefnu í Hörpunni, þar sem allskonar fólk ætlar að lofa samstarfið við Alþjóða-gjaldeyrissjóðinn.

Vegna þess hafa ýmsir tekið sig saman og ætla að reyna að segja ráðstefnugestum sannleikann. 

Hérna fyrir neðan kemur bréf sem sent hefur verið ráðstefnugestum, og ýmsum fjölmiðlum.

"

Bréf vegna hól-ráðstefnu AGS 27.10.2011

Eftirfarandi bréf er ritað af hópi fólks sem hefur sett spurningamerki við efnahagslegan bata Íslands eftir hrunið og hvernig hann er settur fram af opinberum aðilum og AGS. Það var sent á eftirfarandi aðila á ensku:Joseph Stiglits, Willem Buiter, Poul Thomsen, Julie Kozack, Paul Krugman, Simon Johnson, Nemat Shafik og Martin Wolf en þetta eru erlendur sérfræðingarnir sem munu taka þátt í ráðstefnunni sem haldinn verður í Hörpunni n.k. fimmtudag undir yfirskriftinni: Iceland´s Recovery—Lessons and Challenges.

Reykjavík 23. október 2011

Kæri herra/frú

Tilefni þessara skrifa er það að þú ert meðal þeirra sem munu taka til máls á ráðstefnunni Iceland´s Recovery-Lessons and Challenges, sem haldin verður í Reykjavík 27. október næst komandi. Við undirrituð höfum áhyggjur af því að þú hafir aðeins fengið valdar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi frá hérlendum stjórnvöldum. Við viljum því benda þér á mikilvægar viðbótarupplýsingar varðandi fjármál ríkis og sveitarfélaga, fjármálakerfið og stöðu almennings í landinu.

Almennt

Ljóst er að staðan í íslensku efnahagslífi er nokkuð önnur í dag en upphaflegar áætlanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gerðu ráð fyrir þegar þeir komu hér að málum í lok árs 2008. Þannig voru erlendar skuldir þjóðarbúsins nærri tvöfalt meiri í árslok 2010 en upphaflega var áætlað; skuldir hins opinbera eru meiri, atvinnuleysi er meira, verðbólga á árinu 2010 var meiri og svo virðist sem samdrátturinn í efnahagslífinu ætli að verða dýpri og vara lengur.

 

Ríkisfjármálin

Fyrir hrun skuldaði ríkissjóður 26% af VLF. Opinberar tölur yfir skuldir ríkisins eru 111% af VLF en heildarskuldir þjóðarbúsins eru hins vegar 280% af VLF. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs versnaði um 140 milljarða króna milli annars ársfjórðungs 2010 og 2011. Ef marka má þessar tölur þá er hægt að leiða að því líkum að íslenska ríkið hafi frá hruni tekið að láni fjárhæð sem nemur jafnvirði landsframleiðslu í eitt ár og þá eru lánin frá AGS ekki einu sinni talin með. Vaxtakostnaður ríkissjóðs af núverandi skuldabyrði er hátt í 20% af tekjum.

Sveitarfélög

Skuldir sveitarfélaganna og skuldbindingar voru 586 milljarðar um seinustu áramót. Ef skuldir Orkuveitu Reykjavíkur, sem eru vel á 300 milljarða, og 47 milljarða lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaganna eru frátaldar standa samanlagðar skuldir sveitarfélaganna í 310 milljörðum kr. sem er 20% af VLF og 154% af tekjum þeirra.

Fjármálakerfið

Kostnaður íslenska ríkisins við endurreisn bankakerfisins í kjölfar hrunsins haustið 2008 var 64% af VLF sem er heimsmet. Nýju bankarnir fengu lánasöfn gömlu bankanna á 45-65% af raunvirði þeirra. Þessi niðurfelling á milli gömlu og nýju bankanna hefur þó ekki skilað sér til almennings þar sem lánin eru rukkuð inn á nafnvirði þeirra. Afleiðingarnar eru mikill hagnaður bankanna sem byggir á því að þeir eru að eignast stóran hluta af öllum eignum íslenskra fyrirtækja og heimila.

Almenningur

Nú er svo komið að 20% heimila í landinu geta ekki borgað af lánum sínum og 40% eru í miklum erfiðleikum. Í raun eru það bara 10% sem geta greitt af húsnæðislánum með eðlilegum hætti.

Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa lækkað um 27,4% síðastliðin þrjú ár á meðan verðlag hefur hækkað um 40%. Af þessum ástæðum hefur neysla þjóðarinnar dregist saman. Á sama tíma hefur þörfin fyrir mataraðstoð margfaldast en engar opinberar tölur eru til yfir fjöldann. Það eru þó staðreyndir að biðraðirnar við hjálparstofnanir hafa lengst og fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna hefur aukist um 62% frá hruni.

Fram hefur komið í tölum ríkisskattstjóra að skuldir íslenskra fjölskyldna hafi vaxið meira en eignir en á síðasta ári rýrnuðu eignir í fyrsta skipti meira en skuldir. Fjölskyldum sem eiga meira en þær skulda hefur fækkað um 8,1% milli ára. Þeim sem voru með neikvæðan eignaskattstofn fjölgaði hins vegar um 12,1%.

Samkvæmt síðustu tölum Vinnumálastofnunar er atvinnuleysið 6,7%. Sú tala er hins vegar umtalsvert hærri þar sem markvisst er unnið að því að koma atvinnulausum í nám og margir hafa yfirgefið landið í leit að atvinnu og betri lífskjörum. Í þessu sambandi skiptir líka máli að hópur fólks sem er atvinnulaus en á ekki rétt á atvinnuleysisbótum skráir sig ekki atvinnulausa. Hvatinn til að skrá sig er ekki til staðar þar sem fólk fær engar bætur hvort sem er. Að lokum er rétt að benda á að samkvæmt tölum sem hafa verið í opinberri umræðu má ráða að störfum á Íslandi hafi fækkað um 22.500 sem er u.þ.b. 8,2% af skráðu vinnuafli árið 2010.

Niðurstaðan

Meginástæða hrunsins var ofvaxið bankakerfi. Það orkar því mjög undarlega á almenning að horfa upp á þá ofuráherslu sem stjórnvöld leggja á endurreisn þessa sama kerfis í stað þess að byggja upp raunhagvöxt samfélagsins. Byrðum fjármálakreppunnar hefur fyrst og fremst verið dreift á skuldsett heimili. Ríkisstjórnin hefur markvisst unnið gegn almennri leiðréttingu lána og innleitt sértæk skuldaúrræði sem gefa bönkunum sjálfdæmi varðandi það hverjir fá leiðréttingu og hversu mikla. Flest ef ekki öll úrræði við skuldavanda heimila og smærri fyrirtækja hafa miðast við að viðhalda greiðsluvilja.

Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð bankanna hafa skapað aukna misskiptingu. Landsmenn horfa upp á að það er verið að afskrifa skuldir þeirra sem ullu hruninu. Þessir halda líka fyrirtækjum sínum og arði af ólöglegum fjármálagjörningum á sama tíma og almenningur er látinn sitja uppi með forsendubrestinn. Því er svo komið að óréttlætið ógnar félagslegum stöðugleika í landinu. Kjörnir fulltrúar fara eftir kröfum fjármálaaflanna á kostnað hagsmuna almennings.

Íslenska bankakerfið hefur sett skuldir sínar yfir á almenning eins og gert hefur verið í Grikklandi, Írlandi, Portúgal og víðar. Ísland sker sig því ekkert úr hvað það varðar að lýðræðið hefur orðið fórnarlamb bankaveldisins.

Virðingarfyllst,

Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Ásta Hafberg, nemandi í viðskiptastjórnun

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, fyrrverandi garðyrkjustjóri

Elínborg K. Kristjánsdóttir, fyrrverandi blaðamaður

Elías Pétursson, framkvæmdastjóri/háskólastúdent

Eyjólfur Kolbeinn Eyjólfsson, hugbúnaðarsérfræðingur

Björg Sigurðardóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður

Björk Sigurgeirsdóttir, ráðgjafi

Guðbjörn Jónsson, ráðgjafi kominn á eftirlaun

Guðmundur Ásgeirsson, kerfisfræðingur

Guðrún Skúladóttir, sjúkraliði

Gunnar Skúli Ármannsson, læknir

Helga Garðarsdóttir, ferðamálafræðingur

Helga Þórðardóttir, kennari

Indriði Helgason, rafvirki

Jakobína I. Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur

Rakel Sigurgeirsdóttir, íslenskukennari

Sigurjón Þórðarson, líffræðingur

Sigurlaug Ragnarsdóttir, listfræðingur

Vilhjálmur Bjarnason, ekki fjárfestir

Þórarinn Einarsson, aktívisti

Þórður Á. Magnússon, framkvæmdarstjóri

Afrit sent á erlenda og innlenda fjölmiðla svo og ráðherrana þrjá sem eru í gestgjafahlutverkinu á ráðstefnunni: Iceland´s Recovery-Lessons and Challenges sem haldinn verður í Hörpunni n.k. fimmtudag eða þ. 27. október"


mbl.is Merki um sambandsleysi við hjartslátt þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er Herman van Rompuy?

Þetta myndband er uppáhaldið mitt. 


mbl.is Íhuga að breyta sáttmála ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla eðlilegt?

Þegar ég horfi á myndina af vinningshafanum get ég varla annað en undrast.

Finnst fólki í lagi að kona líti svona út? 

Mér finnst hún eins og karlmaður með óþarfan brjóstahaldara.

Að vísu hef ég fordóma gagnvart svona vöðvatröllum, hvort sem það er karlmaður eða kona.

Þetta er ekki eðlilegt holdafar á fólki.


mbl.is Sólrún Norðurlandameistari í fitness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna þú ert á villigötum

„Við munum klára þetta mál. Til þessa verks vorum við kosin og því umboði verðum við trú, allt til enda," sagði Jóhanna. „Áður en gengið verður til kosninga verðum við að ljúka aðildarviðræðum okkar við ESB."

Þú er aðeins fulltrúi tæplega 30% Íslendinga, þú hefur ekki meirihluta til þess að klára dæmið. 

Þú hefur aðskilið þig frá þjóðinni sem mun kjósa um ESB, það er meirihluti þjóðarinnar sem er á móti inngöngu í ESB.

Hrokinn og yfirgangssemin sem þú notar er þér ekki góðs, og þegar þú flytur annarra manna ræður ertu ótrúverðug...


mbl.is Mun klára aðildarviðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll Árnason

Nei, þú ert ekki maðurinn til þess að skilgreina "nýtt vín á gömlum belgjum" eða ekki.

Ég held að þú hafir ekki nægt vit til þess að greina þetta sjálfur. 

Fjármálakerfið er of flókið fyrir þig og marga samverkamenn þína. 

Ekki þykist ég hafa meira vit en þú, en ég er náttúrulega bara húsmóðir með litla sem enga menntun. 

Ég trúi því að besta manneskjan sem þessi stjórn átti, hún Lilja Mósesdóttir hafi meira vit á þessu en flestir sitjandi stjórnarliðar.

Mér finnst þú ómarktækur.


mbl.is Ræðir framtíð fjármálakerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar vel ég "friðarspillinn"

Frekar vel ég "friðarspillinn" en Björn Val Gíslason, hvenær sem ég þyrfti að velja á milli þeirra.

Ég skil ekki þessa gremju Björns Vals út í forsetann, er hann svona svekktur vegna þess að Ólafur Ragnar Grímsson vísaði tveimur "Iceslave" samningum til þjóðarinnar? 

Eða hversvegna er honum svona illa við forsetann okkar? 

Þykist hann vera yfirmaður forsetans? 


mbl.is Forsetinn friðarspillir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menntun/hungur

Jóhanna sér ástæðu til þess að "finna 1,5 milljarð" til þess að hækka framlög til Háskóla Íslands.

Á sama tíma eru ekki til peningar til þess að "finna krónu" fyrir fjölskylduhjálpina.

Ætti kannski fólkið sem á ekki fyrir mat að fara í Háskóla Íslands, þar gæti fundist matarhola? 

Finnst fólki ekki eitthvað mikið að Jóhönnu? 

Maður spyr sig....

Svo er annað sem ég vil minnast á, það er fátækt á Íslandi.

Það er búið að finna svokölluð "neysluviðmið" Til hvers voru þau fundin? 

Er fólk sem er undir "neysluviðmiðum" fátækt? 

Hvenær verður fátækt skilgreind hérna á Íslandi? 

Maður spyr sig....


mbl.is Vegleg gjöf á aldarafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband