Varla eðlilegt?

Þegar ég horfi á myndina af vinningshafanum get ég varla annað en undrast.

Finnst fólki í lagi að kona líti svona út? 

Mér finnst hún eins og karlmaður með óþarfan brjóstahaldara.

Að vísu hef ég fordóma gagnvart svona vöðvatröllum, hvort sem það er karlmaður eða kona.

Þetta er ekki eðlilegt holdafar á fólki.


mbl.is Sólrún Norðurlandameistari í fitness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég vil gera svona 100m háa styttu og setja hana við Hörpuna og kalla hana Miss 2007. Finnst þetta eitthvað svo lýsandi fyrir amfetamínsterana sem þjóðin var á þá.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.10.2011 kl. 03:46

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég er nú eiginlega sammála, þetta er ekki eðlilegt holdafarll, enda skorið og skælt.  Svo er annað það þarf að halda þessu við ef skrokkurinn á ekki eftir að pokast niður um allt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2011 kl. 10:59

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég kann ekki að meta þessar öfgar.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.10.2011 kl. 11:04

4 Smámynd: Mofi

Mér finnst hún ýkt flott :/ Eina leiðin til að ná þessu er að borða hollt og æfa. Skvabbið á okkur flestum eru öfgar og óheilbrigði sem ég kann ekki að meta.

Mofi, 23.10.2011 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband