22.1.2010 | 01:28
Ég er óánægður viðskiptavinur
Ég ætla að skipta um bæði tryggingarfélag og banka alveg á næstunni. Ég get ekki mælt með því að tryggja hjá Sjóvá Almennum tryggingum. Frumburðurinn minn tryggir hjá öðru tryggingarfélagi og borgar næstum 50% minna í tryggingu á bara bílnum sínum.
Ég hef verið að borga u.þ.b 250 þúsund á ári fyrir tryggingar. Ég vona að ég finni banka sem er ekki með sama spillingarliðið í vinnu og fyrir hrunið, og tryggingarfélag sem rekið heiðarlega og er ekki búið að skuldsetja tryggingarsjóðinn sinn eins og Sjóvá Almennar gerðu í boði fyrrverandi eigenda.
Athugasemdir
Einn sona minna tryggir hjá ,,Sunlife,, það er víst breskt. Þetta virkar sem lífeyrir skilst mér er endurgreitt,eftir ákveðinn tíma. Tek ekki ábyrgð,en á sínum tíma var þetta hagstætt.
Helga Kristjánsdóttir, 22.1.2010 kl. 02:07
Vá, ertu með fyrirtæki... að þú skulir borgar svona mikið í tryggingar?
Hlýtur að vera meira en bíll og íbúð (innbú og húseigtr.) er það ekki?
Eygló, 22.1.2010 kl. 02:48
Bílar og hús hríðfalla í verði, en tryggingarnar hækka.
Júlíus Björnsson, 22.1.2010 kl. 03:57
Var einmitt að hugsa hvaða tölur þetta voru sem komu á yfirlitinu mínu og sýnist tryggingarnar hafa hækkað ískyggilega. Eg er með mínar hjá TM eftir nokkur ár hjá VÍS. Held þetta sé nú allt svipað - óhófleg gjaldtaka og svindl með almannafé. En maður þorir ekki annað en að vera tryggður þótt fæstir fái raunbætur ef eitthvað hendir.
, 22.1.2010 kl. 17:32
Eygló ég er ekki með fyrirtæki!!! Bara fjölskyldu. Og að vísu 2 bíla í fyrra en ekki núna.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.1.2010 kl. 00:49
Ja, það er allavega 'fyrirtæki' að reyna að finna peninga til að borga þessi ósköp. Bílatryggingarnar reyndar skaga hátt!
Eygló, 23.1.2010 kl. 00:51
Bíla eign Íslendinga í prósentum lítur ekki vel út á meginlandinu er ég viss um þessu til austurs.
Júlíus Björnsson, 23.1.2010 kl. 01:47
Endilega láttu mig vita þegar þú finnur spillingarlausan banka og tryggingafélag.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 23.1.2010 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.