Lygar, feluleikur

Baktjaldamakk, svik, mikilmennskubrjálæði þetta eru orð sem mér dettur í hug þegar núverandi stjórn  og þingmenn hennar koma upp í hugann á mér.  Ég held að núverandi vinstristjórn hafi ekki gert eitt einasta atriði rétt, síðan hún tók við.  Það hefur orðið algjör viðsnúningur í skoðunum og gerðum næstum allra þingmanna stjórnarinnar.  Ef einhver kannast við loforð sem staðið hefur má sá hinn sami skrifa loforðin í athugasemd með þessarri færslu. 
mbl.is Ver samningaleið stjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég get því miður ekki nefnt neitt slíkt.  Og ég er mjög undrandi á hvernig þetta allt saman hefur velkst og sullast hjá þeim Steingrími og Jóhönnu, ég hélt í upphafi að þau væru vandaðri manneskjur og orðheldnari.  En ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2010 kl. 15:53

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég hafði afar stórar áhyggjur þegar niðurstöður kosninganna lágu fyrir og ekki minnkuðu þær þegar dagskrá sumarþingsins lágu fyrir. Sumarfríið var ekki tekið af þingmönnum til að takast á við þann bráðavanda sem blasi við almenningi í landinu. Þ.e. óðaverðbólgu sem át upp eignir fólks og atvinnumissi. Nei, þingmenn skyldu sitja saman undir fyrirframákveðnum niðurstöðum varðandi umsókn um Evrópusambandsaðild og Icesavenauðungarsamningi. Í þetta þjark fór sumarið! og það stendur enn!

Ég tek þó undir með Ásthildi að ég reyndi að vona á þeirri trú að Jóhanna og Steingrímur myndu standa betur við þær væntingar sem kjósendur þeirra bundu við þau.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 19.2.2010 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband